Innlent

Handtekinn grunaður um að beita konu ofbeldi á heimili sínu

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt.
Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. vísir/ktd
Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt.

Um klukkan hálf ellefu leitaði kona aðstoðar á lögreglustöðinni í Kópavogi og tilkynnti að hún hefði orðið fyrir ofbeldi á heimili sínu í Breiðholti skömmu áður. Í framhaldinu handtók lögreglan karlmann á fimmtugsaldri grunaðan um að hafa beitt konuna ofbeldi. Maðurinn var færður til yfirheyrslu, skýrsla tekin af honum og hann frjáls ferða sinna að því loknu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er málið komið í farveg.

Um klukkan hálf fjögur í nótt óskaði móðir eftir aðstoð lögreglu á heimili sitt í Breiðholti vegna ölvaðrar dóttur sinnar. Lögreglan veitti umbeðna aðstoð og flutti konuna í Konukot þar sem hún fær viðeigandi umönnun.

Rétt rúmlega fjögur í nótt var óskað eftir aðstoð lögreglu að BSÍ í Vatnsmýri. Þar voru tveir menn í annarlegu ástandi að valda fólki ónæði mað háttalagi sínu. Við afskipti lögreglu kom í ljós að mennirnir voru undir töluverðum áhrifum vímuefna og þar að auki með nokkurt magn fíkniefna meðferðis. Mennirnir eru rétt rúmlega tvítugir og voru þeir færðir í fangageymslu meðan mál þeirra eru rannökuð, meðal annars hvort þeir hafi ætlað efnin til dreifingar og sölu.

Lögreglan handtók mann á fertugsaldri um hálf tólf á Laugavegi við Vegamótastíg. Reyndist maðurinn vera í annarlegu ástandi og með kannabisefni í fórum sínum. Maðurinn var færður til lögreglustöðvar og málið afgreitt þar.

Þá hafði lögreglan fengið tilkynningu um að maður væri ósáttur og æstur við gistiskýlið á Lindargötu. Maðurinn kastaði steinum í rúður hússins og var hann handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til af honum rennur víman. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, hefur áður komist í kast við lögin.

Þá var lögreglunni tilkynnt um ofurölvi og ósjálfbjarga mann á Ingólfstorgi um ellefuleytið. Lögreglan handtók manninn sem er á sextugsaldri. Samkvæmt dagbók lögreglu var maðurinn svo ölvaður að hann gat ekki hagað sér á almannafæri. Hann var færður í fangaklefa þar til af honum rennur víman.

Þá var tilkynnt um tvö innbrot í austurborginni á þriðja tímanum í nótt. Annars vegar í blómaverslun, þar sem skiptimynt var stolið og er þjófsins leitað. Hins vegar var brotist í bifreið og er málið í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×