Innlent

Óvænt dauðsföll hafa nánast tvöfaldast

Þorgeir Helgason skrifar
Ólafur Baldursson, framkvæmdarstjóri lækninga á Landspítalanum.
Ólafur Baldursson, framkvæmdarstjóri lækninga á Landspítalanum. Fréttablaðið/Ernir
Tilkynningum um alvarleg atvik í íslensku heilbrigðiskerfi til Embættis landlæknis hefur fjölgað mikið síðustu ár. Í ár hefur verið tilkynnt um 28 tilvik sem leitt hafa til andláts en árið 2014 voru þau 15. Helmingur þessara 28 varð á Landspítala.

Það sem af er ári 2016 hafa 35 tilvik verið tilkynnt og af þeim hafa 28 leitt til andláts, ýmist strax eða sem líkleg afleiðing skömmu síðar.

„Hátt í helmingurinn af þessum andlátum eru slys sem illmögulegt hefði verið að koma í veg fyrir,“ segir Anna Björg Aradóttir, sviðsstjóri sviðs eftirlits og frávika hjá Embætti landlæknis.

Anna segir að þetta árið hafi Embætti landlæknis borist óvenjumikið af andlátstilkynningum frá heilbrigðisstofnunum. Fjölgunina megi rekja til þess að heilbrigðisstarfsfólk er meðvitaðra um tilkynningarskylduna. Það sé til að mynda vegna málaferla hjúkrunarfræðingsins sem ákærður var fyrir manndráp af gáleysi í fyrra vegna starfa sinna. Anna segir að heilbrigðisstofnanir hafi tilkynnt í ár atvik sem þau hefðu ekki tilkynnt síðustu ár til þess að hafa allan vara á.

Alvarlegum atvikum sem koma á borð landlæknis hefur fjölgað mikið síðustu ár. Í fyrra voru þau 29, árið 2014 33, árið 2013 átta, og árin 2011 og 2012 níu.

„Meginskýringin á þessari aukningu er sú að skráningin er að batna en við höfum á síðustu árum lagt á það ríka áherslu að starfsfólk tilkynni öll atvik,“ segir Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum.

Það sem af er ári hafa fjórtán alvarleg atvik komið upp á Landspítalanum sem hafa leitt til dauðsfalls.

Í svari frá Ólafi segir að lögregla hafi verið kölluð til vegna nítján óvæntra dauðsfalla á Landspítalanum frá 1. janúar 2011. Eina ákæran sem hefur verið gefin út var í máli fyrrnefnds hjúkrunarfræðings en hann var sýknaður.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×