Draumabyrjun í fyrri en matraðarbyrjun í þeim síðari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2016 21:17 Estelle Nze Minko var markahæst hjá Frökkum. Vísir/AFP
Franska kvennalandsliðið lét ekki slæma byrjun slá sig út af laginu í annarri umferð riðlakeppni Evrópumóts kvenna í handbolta í kvöld.Frakkar unnu tveggja marka sigur á Þýskalandi, 22-20, og þær frönsku hafa fullt hús eftir tvær umferðir. Bæði liðin höfðu unnið leik sinn í fyrstu umferðinni. Þýska liðið fékk sannkallaða draumabyrjun þegar liðið komst í 3-0 og 5-1 og þær þýsku voru 10-7 yfir þegar átta mínútur voru til hálfleiks. Frökkum tókst hinsvegar að jafna metin í 11-11 fyrir hálfleik og það skipti miklu máli.Frakkarnir skoruðu síðan fjögur fyrstu mörkin í seinni hálfleiknum, komust í 15-11 og litu ekki til baka eftir það. Þær þýsku skoruðu tvö síðustu mörk leiksins og löguðu stöðuna. Estelle Nze Minko skoraði fimm mörk fyrir franska liðið og var markahæst. Laura Flippes skoraði fjögur mörk. Svenja Huber var með sex mörk fyrir þýska liðið.Slóvenar unnu á sama tíma tveggja marka sigur á Svíum, 25-23, en þetta var fyrsti sigur slóvenska liðsins í keppninni. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en þær slóvensku skoruðu tvö síðustu mörkin í leiknum. Svíar og Slóvenar hafa tvö stig eftir tvær umferðir en Serbar eru með fjögur stig eða fullt hús á toppi riðilsins. Það dugði ekki sænska liðinu að Isabelle Gulldén skoraði tíu mörk í leiknum. Tamara Mavsar var markahæst hjá Slóvenum með sex mörk en hún kom Slóveníu í 24-23 í lokin.
Handbolti Mest lesið Yfirlýsing Alberts: Ákveðinn léttir eftir erfitt ár Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Litháen 0-2 | Vonir íslenska liðsins orðnar að engu Fótbolti Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland Fótbolti Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“ Fótbolti Þak leikvangsins rifnaði í tætlur Sport Finnur Freyr í veikindaleyfi Körfubolti Åge ræður hvort kallað verði í Albert Fótbolti Heimir um ummæli Dunne: „Ykkar starf að safna áskrifendum“ Fótbolti Svona var fundur KSÍ fyrir leikinn við Wales Fótbolti Ætlar ekki að hætta að sjúga í sig kosmíska krafta Fótbolti Fleiri fréttir „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun „Aðalmunurinn hvernig líkamlegir burðir eru“ FH átti erfitt uppdráttar án lykilleikmanna Vandaverk vængbrotinna FH-inga: „Gefum allt í botn“ Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg Orðaður við Ísland í fyrra en virðist taka við Svíum Haukar unnu einvígið með 35 marka mun Valskonur flugu áfram í aðra umferðina Arnór lét til sín taka í þriðja sigri Fredericia í röð Óðinn Þór öflugur ÍBV sótti sigur í Garðabæinn Risasigrar hjá Val og Haukum Selfoss komið á blað Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Uppgjörið: FH - Valur 23-30 | Valur á flugi og FH ekki eins án Arons Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin Magdeburg missti heimsmeistaratitilinn „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Nítján marka stórsigur hjá Haukum Elliði markahæstur, öruggt hjá Andra og Andreu Óðinn markahæstur í toppslagnum Uppgjörið: Fram - Valur 25-29 | Valur vann stórveldaslag Íslendingaliðið með fullt hús stiga eftir fimm umferðir Þórir sáttur með eftirmanninn: „Hann er sá rétti“ Magdeburg í úrslit fjórða árið í röð Bjarki Már í úrslit á kostnað Barcelona Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Sjá meira