Tékknesku stelpurnar unnu Ungverja í fyrsta sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2016 19:16 Rússar fagna sigri. Vísir/AFP
Lið Tékklands og Rússlands byrjuðu bæði Evrópumótið í handbolta kvenna með góðum sigri í dag en keppni hófst þá í C- og D-riðlum Evrópukeppninnar í ár. Tékkar unnu 27-22 sigur á Ungverjalandi en þetta var í fyrsta sinn sem tékknesku stelpurnar vinna Ungverja. Svartfjallaland og Danmörk eru einnig í C-riðlinum og mætast seinna í kvöld. Tékkar voru 13-10 yfir í hálfleik. Veronika Malá og Michaela Hrbková, sem báðar spila í Þýskalandi, voru markhæstar í tékkneska liðinu með fimm mörk hvor. Það kom ekki að sök að Iveta Luzumová, leikmaður þýska liðsins Thüringer HC, klikkaði á öllum átta skotum sínum í leiknum. Anna Kovács var markahæst hjá Ungverjum með sjö mörk. Rússar unnu öruggan 32-26 á Króatíu á sama tíma. Norðmenn mæta Rúmeníu í hinum leik D-riðilsins seinna í kvöld. Rússar voru 16-13 yfir í hálfleik en unnu svo fyrstu sjö mínútur seinni hálfleiksins 7-2 og komust í 23-15. Rússarnir Vladlena Bobrovnikova og Victoria Zhilinskayte nýttu báðar öll sex skotin sín í leiknum. Andrea Penezić var markahæst hjá Króatíu með átta mörk og Vesna Milanović-Litre nýtti öll sex skotin sín.
Handbolti Mest lesið Yfirlýsing Alberts: Ákveðinn léttir eftir erfitt ár Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Litháen 0-2 | Vonir íslenska liðsins orðnar að engu Fótbolti Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland Fótbolti Finnur Freyr í veikindaleyfi Körfubolti Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“ Fótbolti Þak leikvangsins rifnaði í tætlur Sport Åge ræður hvort kallað verði í Albert Fótbolti Leik lokið: Valur - Þór Þ. 88-95 | Þórsarar kláruðu dæmið í framlengingu Körfubolti Uppgjörið: KR - Stjarnan 86-87 | Linards klikkaði á línunni og Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari Körfubolti Heimir um ummæli Dunne: „Ykkar starf að safna áskrifendum“ Fótbolti Fleiri fréttir Toppliðið tapaði og Afturelding fór á toppinn Eyjamenn sigu fram úr í lokin Bjarki Már með þrjú mörk í stórsigri Veszprém „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun „Aðalmunurinn hvernig líkamlegir burðir eru“ FH átti erfitt uppdráttar án lykilleikmanna Vandaverk vængbrotinna FH-inga: „Gefum allt í botn“ Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg Orðaður við Ísland í fyrra en virðist taka við Svíum Haukar unnu einvígið með 35 marka mun Valskonur flugu áfram í aðra umferðina Arnór lét til sín taka í þriðja sigri Fredericia í röð Óðinn Þór öflugur ÍBV sótti sigur í Garðabæinn Risasigrar hjá Val og Haukum Selfoss komið á blað Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Uppgjörið: FH - Valur 23-30 | Valur á flugi og FH ekki eins án Arons Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin Magdeburg missti heimsmeistaratitilinn „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Nítján marka stórsigur hjá Haukum Elliði markahæstur, öruggt hjá Andra og Andreu Óðinn markahæstur í toppslagnum Uppgjörið: Fram - Valur 25-29 | Valur vann stórveldaslag Íslendingaliðið með fullt hús stiga eftir fimm umferðir Þórir sáttur með eftirmanninn: „Hann er sá rétti“ Sjá meira
Uppgjörið: KR - Stjarnan 86-87 | Linards klikkaði á línunni og Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari Körfubolti
Uppgjörið: KR - Stjarnan 86-87 | Linards klikkaði á línunni og Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari Körfubolti