Innlent

Hafa ekki eftirlit með aflífun alifugla

Svavar Hávarðsson skrifar
Sigurborg Daðadóttir
Sigurborg Daðadóttir

Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, segir að skýrt sé kveðið á um í lögum hvað er leyfilegt og hvað ekki við aflífun dýra. Við hefðbundna aflífun á búum sé notast við koltvísýring og síðan eru hræin urðuð. „Við höfum ekki haft sérstakt eftirlit með aflífun á þessum alifuglabúum,“ segir Sigurborg en ekki er uppi grunur um að framleiðendur hafi verið að stytta sér leið með aflífun fuglanna. Um mannúðlega aðferð er að ræða, enda væri hún ekki annars leyfð – fuglarnir sofna fljótt af gasinu í þar til gerðum tunnum eða körum.



Á hefðbundnu eggjabúi fara fuglarnir í varphúsin í kringum 18 til 19 vikna aldur, og byrja að verpa á 23. viku. Hver fugl er síðan í varpi í 12 til 16 mánuði. Að þeim tíma liðnum hefur fuglinn skilað sínu.



„Ef þeim er slátrað þá eru fuglarnir sendir í slátrun eins og hver önnur dýr. Ef ekki er þeim fargað með þeim hætti sem ég lýsti,“ segir Sigurborg sem segir að ekkert af þeim fugli sem Matvælastofnun hafði afskipti af hjá Brúneggjum hafi verið slátrað til manneldis.



„Það var ekki um það að ræða. Mér er hins vegar kunnugt um að á þessu ári, 2016, hefur 4.500 hænum verið slátrað hjá Brúneggjum sem þeir hafa dreift undir sínum merkjum, enda staðan allt önnur á búinu núna. Árið 2015 var engu slátrað eftir því sem ég best veit, en ég get ekki dæmt um hvort það hafi verið vegna afskipta okkar. En í öllu falli var engu slátrað það ár,“ segir Sigurborg. 


Tengdar fréttir

Lífræn ræktun gæti skaðast

Notkun fyrirtækja á innihaldslausri vottun um vistvæna framleiðslu gæti spillt fyrir þeim sem hafa allt sitt á hreinu og lúta ströngu regluverki lífrænnar framleiðslu. Lífræn vara lýtur ströngu eftirliti byggðu á ESB-reglum.

Spældir enda búnir að missa alla kúnna

Kristinn Gylfi Jónsson, einn af eigendum Brúneggja, segir afar erfitt að takast á við þær aðstæður sem sköpuðust eftir að Kastljós fjallaði um málefni fyrirtækisins á mánudagskvöld.

Hafnar alfarið ábyrgð á brúneggjamáli

Kristinn Hugason, fyrrverandi starfsmaður atvinnuvegaráðuneytisins, hafnar því með öllu í viðtali við Fréttablaðið að hann beri á nokkurn hátt ábyrgð á því að málefni fyrirtækisins Brúnegg, sem Kastljós fjallaði um á mánudagskvöld, dagaði uppi í ráðuneytinu án aðgerða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×