Menning

Föst jólahefð í lífi margra að hlýða á barokkið

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Jólatónleikarnir eru þeir mannfrekustu á árinu hjá  Kammersveitinni. Hér er hópurinn á æfingu.
Jólatónleikarnir eru þeir mannfrekustu á árinu hjá Kammersveitinni. Hér er hópurinn á æfingu. Vísir/Stefán
Sveitin fylgir því sem lagt hefur verið upp með alla tíð, að flytja hátíðlega barokktónlist og ekkert annað,“ segir Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari, talandi um jólatónleika Kammersveitar Reykjavíkur á morgun, sunnudag, klukkan 17.15 í Norðurljósasal Hörpu.

Hún segir það fasta jólahefð í lífi margra að fara á þessa árlegu tónleika og nú verði sú nýbreytni að söngvari komi fram með sveitinni, enginn annar en Kristinn Sigmundsson.



Kammersveitin stendur á tímamótum því Rut Ingólfsdóttir sem stofnaði hana fyrir 40 árum er hætt. „Nú erum við nokkur saman sem rekum sveitina af ástríðu. Erum atvinnumenn en þetta er samt hugsjónastarf því okkur finnst nauðsynlegt að hafa eina svona kammersveit í samfélaginu. Það er líka stór hópur sem vill hafa hana áfram en það er ekki alveg sjálfgefið mál á okkar tímum.“

Áshildur segir jólatónleikana mannfrekustu tónleika ársins. „En þetta gengur vel hjá okkur. Það er góð stemning í hópnum og mér líst mjög vel á samstarfið við Kristin Sigmunds og Jory Vinikour, einn af fremstu semballeikurum heims, sem mun stjórna tónleikunum, auk þess að flytja sembalkonsert C.P.E. Bachs.“

Áshildur kveðst hafa kynnst Jory Vinikour fyrst þegar hún var í Bandaríkjunum í námi, þá hafi þau spilað saman, síðar hafi þau rekist hvort á annað í Parísarkonservatoríinu. Hann hafi líka unnið með Kristni í Parísaróperunni og það sé sérstakt ánægjuefni að fá þessa tvo frábæru listamenn til samstarfs við Kammersveitina nú.

Spurð hvort ekki þurfi að skipuleggja svona gigg með margra mánaða fyrirvara svarar Áshildur: „Jú, því frægari sem listamenn eru, því meiri fyrirvari.“

Áshildur byrjaði að spila með Kammersveitinni sem einleikari þegar hún var nýbúin í námi og kveðst nú hafa verið viðloðandi hana í tíu ár. Hún segir áheyrendur á tónleikum sveitarinnar jafnan vera á öllum aldri. „Stærsti áheyrendahópur klassískrar tónlistar er samt miðaldra og upp úr,“ segir hún. „En það koma alltaf nýir miðaldra svo ég hef engar áhyggjur.“

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 17. desember 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.