Innlent

Þarf 700 milljónir til viðbótar vegna móttöku hælisleitenda

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sprenging hefur orðið í hælisumsóknum á árinu og þarf meira fjármagn í málaflokkinn en gert var ráð fyrir á fjárlögum.
Sprenging hefur orðið í hælisumsóknum á árinu og þarf meira fjármagn í málaflokkinn en gert var ráð fyrir á fjárlögum. vísir/gva
Gerð er tillaga um 700 milljóna framlag á fjáraukalögum þessa árs vegna aukins fjölda hælisleitenda en frumvarp til fjáraukalaga var lagt fram á þingi í dag.

Í frumvarpinu kemur fram að á þessu ári hafi fordæmalaus fjöldi fólks sótt um hæli hér á landi en það stefnir í að umsóknir um alþjóðlega vernd verði um 1100 á árinu. Er það þreföldun umsókna á milli ára.

Af þessum sökum er áætlað að kostnaður vegna hælismála aukist um tæplega 1,5 milljarða umfram gildandi fjárlög þessa árs en þar af hafa 770 milljónir verið fjármagnaðar með fyrri fjáraukalögum á árinu. Því koma 700 milljónir til viðbótar nú.

„Fyrir liggur að helstu veikleikar þessa kerfis snúa að miklum fjölda umsækjenda frá öruggum upprunaríkjum, einkum ríkisborgarar Albaníu og Makedóníu sem telja yfir helming allra umsókna, sem er mun hærra hlutfall en á hinum Norðurlöndunum,“ segir í frumvarpinu.

Vegna gríðarlegs fjölda umsókna, ekki síst nú í haust, hefur ekki tekist í öllum tilvikum að útvega hælisleitendum hagkvæmustu búsetuúrræðin. Ýmsar aðgerðir hafa þó verið mótaðar til að taka á vandanum að því er segir í frumvarpinu og er þegar farinn að sjást árangur í þeim efnum. Þá er þess vænst að þær muni skila sér að fullum þunga í upphafi árs 2017.

Að auki fær Landspítalinn 100 milljónir króna á fjáraukalögum en sú aukafjárveiting er tilkomin vegna fjölda hælisumsókna og aukins fjölda ferðamanna.

„Þannig hefur fjöldi hælisleitenda slegið öll fyrri met á yfirstandandi ári og kostnaður spítalans vegna þeirra einstaklinga sem leitað hafa til hans hefur aukist að sama skapi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×