Innlent

Eyjólfur fer í fóstur á Íslandi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Eyjólfur ásamt móður sinni Elvu Christinu.
Eyjólfur ásamt móður sinni Elvu Christinu. vísir/anton brink
Eyjólfur Kristinn Elvuson, hin fimm ára gamli drengur sem hefur verið í forgrunni forræðismáls eftir að flúið var með hann frá Noregi til Íslands mun verða settur í fóstur á vegum barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Tryggt verður þó að móðir hans og móðurfjölskylda fái umgengnisrétt.

Þetta staðfestir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnastofu, í samtali við Vísi. Í dag varð endarleg niðurstaða í málinu ljós og hafa norsk barnaverndaryfirvöld hætt sínum afskiptum af málinu.

Forsaga málsins er sú að norsk barnaverndaryfirvöld sviptu Elvu Christinu Hafnadóttur, móðir Eyjólfs, forsjá yfir drengnum, en hún var búsett þar í landi ásamt móður sinni. Þegar úrskurður yfirvalda kom tók fjölskyldan saman föggur sínar og flúði til Íslands. Eftir að dómstólar fjölluðu um málið átti að senda Eyjólf út til Noregs í byrjun desember.

Sjá einnig:Móðir Eyjólfs í skýjunum með að hann verði áfram á Íslandi: „Ég gat ekki hætt að brosa“

„Barnið fer í fóstur á vegum Barnaverndar Reykjavíkur. Það er gert í samráði við móður og móðurfjölskyldu. Því markmiði sem sett var í þessu að Eyjólfur fái að alast upp í íslensku samfélagi er náð með þessari niðurstöðu,“ segir Bragi.

Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu.visir/valli
Hann segir að tryggt verði að móðurfjölskyldan fái umgengnisrétt en það verði samkvæmt ákvörðun Barnaverndarnefndar Reykjavíkur

„Aðalatriðið í þessu er að hans uppruni er íslenskur, hans fjölskylda býr á Íslandi og nú er búið að tryggja það að hann verði hér. Það skiptir máli fyrir hann að geta átt umgengni við sína nánustu. Það er eðlilegt að hann fái að þekkja þetta fólk allt saman.“

Óska eftir svigrúmi

Í yfirlýsingu frá lögmanni Elvu Christinar er komið á framfæri þakklæti vegna þess hlýhugs og stuðnings sem fjölskylda hennar hefur verið sýndur á undanförnum mánuðum. Þá er einnig óskað eftir því að fjölskyldunni verði nú gefið svigrúm til þess að huga að sínum málum.

Elva Christina var í viðtali í Bítinu í gær þar sem hún þakkaði þjóðinni allri fyrir þann stuðning sem hún hafði fengið í gegnum þetta allt saman. 

„Maður fær fiðring í magann hugsandi út í það að þessi litla þjóð hafi bjargað honum. Ég hefði aldrei getað gert þetta ef það væri ekki fyrir fjölmiðla og fólkið þarna úti sem sagði bara nei og þetta kæmi ekki til greina. Ég hefði aldrei getað sagt þessar gleðifréttir ef ég hefði ekki fengið þessa hjálp.“


Tengdar fréttir

Eyjólfur verður áfram á Íslandi

Brottflutningur hins fimm ára gamla Eyjólfs Kristins Elvusonar frá Íslandi til Noregs hefur verið sleginn útaf borðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×