Innlent

Fengu 137 milljónir í jólagjafir

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Valgarður
Heppinn tromp­miðaeigandi vann 25 milljónir króna í aðalútdrætti Happdrættis Háskóla Íslands í gær. Annar hlaut 5 milljónir í sama út­drætti. Þá gengu 10 milljónir út í svo­kallaðri „milljónaveltu“ en að auki fékk einn miðaeigandi 2,5 milljónir og sjö miðaeigendur milljón krónur hver.

Fjórtán hrepptu hálfa milljón.

Í heildina fengu 3.463 miðaeigendur vinning í út­drætti kvölds­ins og nam heildar­upphæð vinninga tæplega 137 milljónum króna.

Happdrætti Háskólans óskar vinningshöfum innilega til hamingju með vinninga sína og um leið ósk­um við þeim og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×