Erlingur rekinn frá Refunum: Sagður of rólegur og skorta leiðtogahæfileika Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. desember 2016 12:08 Erlingur Richardsson þjálfar Refina ei meir. vísir/getty
Erlingi Richardssyni, þjálfara þýska 1. deildar liðsins Fücshe Berlín, hefur verið sagt upp störfum. Frá þessu er greint á vef Handball-World en þar er vitnað í fréttir Bild og Berliner Zeitung. Füchse Berlín hefur ekki staðfest uppsögnina en Erlingur sagði við Bild þegar hann yfirgaf fund með yfirmönnum sínum: „Þið verðið að spyrja Refina.“ Hann sagði svo við fréttastofuna DPA: „Við komumst að samkomulagi um þetta í gærkvöldi.“ Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse, sagði svo leikmönnum frá ákvörðuninni á æfingu liðsins í morgun. Uppsögnin kemur á óvart því Erlingur gerði Berlínarrefina að heimsmeisturum félagsliða annað árið í röð í byrjun tímabilsins og þá er liðið í fjórða sæti deildarinnar. Framkvæmdastjórinn er þó sagður ósáttur við ákveðna hluti í fari Erlings. „Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse Berlin, kvartaði undan skort á leiðtogahæfni á hliðarlínunni. Það mátti einnig lesa á milli línanna ákveðna óánægju með hinn afar rólega og varkára Richardsson,“ segir í frétt þýsku fréttaveitunnar DPA um ósætti síðustu vikna innan félagsins. Erlingur tók við liðinu af Degi Sigurðssyni þegar hann gerðist landsliðsþjálfari Þýskalands en Bob Hanning vildi fá annan íslenskan þjálfara og er spurning hvað hann gerir núna þegar Refirnir eru þjálfaralausir. Füchse Berlín er búið að vinna tvo leiki í röð en frammistaða þess í 26-24 sigri gegn Lemgo í síðustu umferð þóttui ekki sannfærandi. Liðið er búið að vinna þrjá af síðustu sex leikjum, gera tvö jafntefli og tapa gegn Rhein-Neckar Löwen.
Handbolti Mest lesið Þak leikvangsins rifnaði í tætlur Sport Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Enski boltinn Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Enski boltinn Segja Klopp afhjúpa hræsni sína með ráðningunni Fótbolti Skipta dómurum út fyrir gervigreind á sögufræga mótinu Sport „Áægður með að hún skuli hafa tekið af skarið og látið til sín taka“ Körfubolti Dagskráin í dag: Bónus-deildar veisla og Þjóðadeildin á fullt Sport Skilaboðum lekið og Haaland ósáttur Fótbolti Haukar unnu torsóttan sigur gegn Aþenu Körfubolti Magnaður sigur City á Barcelona og Sædís mætti Juventus Fótbolti Fleiri fréttir „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun „Aðalmunurinn hvernig líkamlegir burðir eru“ FH átti erfitt uppdráttar án lykilleikmanna Vandaverk vængbrotinna FH-inga: „Gefum allt í botn“ Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg Orðaður við Ísland í fyrra en virðist taka við Svíum Haukar unnu einvígið með 35 marka mun Valskonur flugu áfram í aðra umferðina Arnór lét til sín taka í þriðja sigri Fredericia í röð Óðinn Þór öflugur ÍBV sótti sigur í Garðabæinn Risasigrar hjá Val og Haukum Selfoss komið á blað Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Uppgjörið: FH - Valur 23-30 | Valur á flugi og FH ekki eins án Arons Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin Magdeburg missti heimsmeistaratitilinn „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Nítján marka stórsigur hjá Haukum Elliði markahæstur, öruggt hjá Andra og Andreu Óðinn markahæstur í toppslagnum Uppgjörið: Fram - Valur 25-29 | Valur vann stórveldaslag Íslendingaliðið með fullt hús stiga eftir fimm umferðir Þórir sáttur með eftirmanninn: „Hann er sá rétti“ Magdeburg í úrslit fjórða árið í röð Bjarki Már í úrslit á kostnað Barcelona Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Sjá meira