Ætla aldrei aftur að dæma 10. desember Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 12. desember 2016 07:30 Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson eru léttir þrátt fyrir höfuðhögg á sama degi með árs millibili. vísir/stefán „
Ég hef það ágætt. Það suðar reyndar enn töluvert í eyranu en annars er ég ágætur,“ segir Bjarki Bóasson handboltadómari en þrumuskot Adams Baumruk, í viðureign Hauka og Akureyrar í Olís-deild karla um helgina, small í stönginni og fór þaðan í höfuð Bjarka. Var gert hlé á leiknum meðan dómarinn jafnaði sig. Hann náði að klára leikinn og var lítið skammaður af þjálfurum og leikmönnum fyrir sína frammistöðu. Leikurinn fór fram þann 10. desember en á þeim degi á síðasta ári fékk félagi hans, Gunnar Óli Gústafsson, þrumuskot Geirs Guðmundssonar í hausinn. Geir þrumaði þá í stöngina, í viðureign Vals og FH og fór boltinn beint í höfuð Gunnars sem fékk heilahristing og var frá dómgæslu í tvo mánuði í kjölfarið. Bjarki dæmdi einn síns liðs síðari hálfleikinn.Adam Baumruk leikmaður hauka mundar hér skothöndina en skot hans small í stönginni í leik um helgina og þaðan í höfuð Bjarka.vísir/anton brinkDómaraparið er eitt af efnilegustu handboltadómurum Evrópu og hefur ferðast um víða veröld til að dæma. Bjarki segir að þessi dagsetning, 10. desember, sé langt í frá besti vinur þeirra félaga og trúlega muni flautan vera upp í hillu verði spilað á þessum degi á næsta ári. „Hlynur Leifsson verður að minnsta kosti ekki eftirlitsmaður hjá okkur verði spilað á þessum degi á næsta ári,“ segir hann léttur. Hlynur var einmitt eftirlitsmaður í leik Vals og FH í fyrra þegar Gunnar fékk boltann í höfuðið sællar minningar og aftur nú þegar Bjarki fékk boltann í höfuðið. „Þetta getur ekki verið tilviljun,“ segir hann og hlær. Þrátt fyrir að vera léttur yfir atvikinu er Bjarki með suð og hellu fyrir fyrir öðru eyranu. Hann fann ekki fyrir neinum svima eða öðru eftir að leik lauk og skellti sér á tónleika um kvöldið með engum öðrum en Björgvini Halldórssyni. „Ég þóttist bara skemmta mér vel en ég heyrði í raun varla neitt,“ segir Bjarki. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þak leikvangsins rifnaði í tætlur Sport Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Enski boltinn Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Enski boltinn Segja Klopp afhjúpa hræsni sína með ráðningunni Fótbolti Skipta dómurum út fyrir gervigreind á sögufræga mótinu Sport „Áægður með að hún skuli hafa tekið af skarið og látið til sín taka“ Körfubolti Dagskráin í dag: Bónus-deildar veisla og Þjóðadeildin á fullt Sport Skilaboðum lekið og Haaland ósáttur Fótbolti Haukar unnu torsóttan sigur gegn Aþenu Körfubolti Magnaður sigur City á Barcelona og Sædís mætti Juventus Fótbolti Fleiri fréttir „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun „Aðalmunurinn hvernig líkamlegir burðir eru“ FH átti erfitt uppdráttar án lykilleikmanna Vandaverk vængbrotinna FH-inga: „Gefum allt í botn“ Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg Orðaður við Ísland í fyrra en virðist taka við Svíum Haukar unnu einvígið með 35 marka mun Valskonur flugu áfram í aðra umferðina Arnór lét til sín taka í þriðja sigri Fredericia í röð Óðinn Þór öflugur ÍBV sótti sigur í Garðabæinn Risasigrar hjá Val og Haukum Selfoss komið á blað Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Uppgjörið: FH - Valur 23-30 | Valur á flugi og FH ekki eins án Arons Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin Magdeburg missti heimsmeistaratitilinn „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Nítján marka stórsigur hjá Haukum Elliði markahæstur, öruggt hjá Andra og Andreu Óðinn markahæstur í toppslagnum Uppgjörið: Fram - Valur 25-29 | Valur vann stórveldaslag Íslendingaliðið með fullt hús stiga eftir fimm umferðir Þórir sáttur með eftirmanninn: „Hann er sá rétti“ Magdeburg í úrslit fjórða árið í röð Bjarki Már í úrslit á kostnað Barcelona Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Sjá meira