Menning

Söngurinn gefur fólki mikið

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Kammerkór Mosfellsbæjar efnir til aðventutónleika í Fella- og Hólakirkju í Breiðholti annað kvöld, 11. desember, klukkan 20.  Þar verða flutt jólalög frá ýmsum löndum. „Við leitum jafnan að nýjum lögum en um jólin eru auðvitað hefðbundin jólalög inn á milli,“ segir kórstjórinn Símon H. Ívarsson. 

„Nú erum við með nýtt/gamalt jólalag, það er að segja Litla trommuleikarann í skemmtilegri útsetningu hóps sem kallar sig Pentatonix og hefur verið að gera garðinn frægan í Bandaríkjunum,“ tekur hann sem dæmi og nefnir líka Kanon eftir J. Pachelbel.

„Það er lag sem margir kannast við og er samið fyrir strengi en ég útsetti sem keðjusöng fyrir kór.“

Liwen Huang leikur með á píanó á tónleikunum. Ástrún Friðbjörnsdóttir syngur einsöng og Ívar Símonarson leikur með á gítar. Einnig kemur fram söngtríóið Vox Camerata sem skipað er félögum úr kórnum.

„Söngurinn gefur fólki mikið hvort sem það er þátttakendur eða hlustendur,“ segir Símon og getur þess að gestum verði boðið upp á kaffi á tónleikunum.



 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 10. desember 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.