Enski boltinn

Pickford frá í nokkra mánuði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jordan Pickford.
Jordan Pickford. vísir/getty
Sunderland varð fyrir miklu áfalli í dag er í ljós kom að markvörður liðsins, Jordan Pickford, er alvarlega meiddur.

Hann meiddist á hné í leiknum gegn Man. Utd og nú er talið að hann verði frá í allt að þrjá mánuði.

Pickford er eitt af fáum ljósum í myrkrinu hjá Sunderland enda varið eins og berserkur þó svo það hafi ekki skilað mörgum stigum.

Vito Mannone mun núna leysa hann af hólmi en hann missti stöðuna til Pickford í ágúst er hann meiddist sjálfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×