Enski boltinn

Martial þarf að gera eins og Mkhitaryan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Anthony Martial.
Anthony Martial. vísir/getty
Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, hefur skorað á Anthony Martial að fara að fordæmi Henrikh Mkhitaryan sem hefur komið inn í lið United af krafti.

Frammistaða Martial í vetur hefur valdið nokkrum vonbrigðum og hann hefur ekki átt fast sæti í liði United. Hann hefur verið orðaður við lán eftir áramót.

„Anthony er mjög ungur. Fólk á það til að gleyma því. Í fyrra lék United allt öðruvísi og þá var hann oftast að spila upp á toppi,“ sagði Mourinho.

„Þetta tímabil hefur verið erfiðara og hann þarf tíma til þess að bæta sig. Mkhitaryan skildi mína gagnrýni mjög vel enda munur á deildinni sem hann er í núna og síðast. Hann lagði hart að sér á meðan hann var ekki að spila og það hefur skilað sér. Tony þarf að gera það líka.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×