Enski boltinn

Zlatan hefur ekki gefið upp von um að vinna titilinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zlatan hefur verið frábær í vetur.
Zlatan hefur verið frábær í vetur. vísir/getty
Svíinn Zlatan Ibrahimovic er bjartsýnismaður að eðlisfari og segir að Man. Utd megi ekki gefa upp alla von um að verða Englandsmeistari í vor.

United er í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og þrettán stigum á eftir toppliði Chelsea þegar nálgast áramót.

Zlatan hefur farið mikinn og skorað 17 mörk í vetur í öllum keppnum.

„Ég er ánægður en ég gæti verið ánægðari. Ég held að við getum enn unnið titilinn. Við höfum stundum ekki fengið öll stigin þó svo frammistaðan hafi átt að skila okkur sigri. Við erum enn inni í þessu og nálgumst næstu lið,“ sagði Zlatan.

„Vonandi munu liðin fyrir ofan okkur fara að misstíga sig svo við komumst enn nær toppnum. Við erum að vinna fyrir þessu. Trúið mér að við erum í þessu til þess að verða meistarar. Það eru engar afsakanir og við ætlum okkur titilinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×