Hugsanlegt að brak úr MH370 hafi skolað á land Þorbjörn Þórðarson skrifar 24. janúar 2016 10:23 Tveggja ára leit að flugvélinni hefur lítinn árangur borið ennþá. Á síðasta ári fannst þó brak úr vélinni. Vísir/EPA
Talið er hugsanlegt að stór málmbútur sem skolaði á land í Suður-Taílandi í gær gæti verið úr malasísku farþegaþotunni MH370, sem hvarf fyrir tveimur árum og ekkert hefur spurst til síðan. 239 manns voru um borð í vélinni. Sjómenn í héraðinu Nakhon Si Thammarat, á suðausturströnd Taílands, fundu málmhlutinn, sem er um þriggja metra langur og tveggja metra breiður, í gær að sögn þarlendra fjölmiðla. Strax kviknuðu vangaveltur um hvort brakið gæti tengst farþegaþotunni dularfullu sem hvarf á flugi frá Kuala Lumpur til Peking í mars 2014. Fulltrúar taílenska hersins fóru á staðinn í gær og sóttu brakið til rannsóknar. Þeir staðfesta að líklega sé um hluta úr flugvélarbúk að ræða. Sé brakið úr vélinni MH370 er þetta fyrsta vísbendingin sem finnst um hvarf hennar síðan í júlí í fyrra þegar brot úr henni fannst á Reunion eyju í Indlandshafi. Leitin að MH370 var ein sú umfangsmesta í sögunni því yfir 80.000 ferkílómetrar af sjávarbotni Indlandshafs hafa verið rannsakaðir. Enn er engin fullvissa um hvað varð til þess að flugvélin hvarf af radarnum þennan örlagaríka dag.
Flugvélahvarf MH370 Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Kveiktu á tónlist til að yfirgnæfa hávaða í mótmælendum Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent Fleiri fréttir Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Sjá meira