Skoðun

Tækifæri til breytinga

Helga Þórðardóttir skrifar
Dögun er umbótasinnaður flokkur sem skilgreinir sig hvorki til hægri né vinstri. Stefna flokksins er einföld en markviss. Við höfum búið til verkefnalista yfir forgangsmál sem við ætlum okkur að ná fram með róttækum kerfisbreytingum. Ef verkefnalistinn er skoðaður þá sést að um er að ræða róttækar breytingar sem bæta hag almennings. Í raun breytingar sem stór hluti þjóðarinnar hefur kallað ítrekað eftir.

Við viljum minnka völd fjármálakerfisins yfir lífi okkar og setja skilyrði svo fjármálakerfið fari að þjóna okkur í stað þess að drottna yfir okkur. Við viljum stuðla að því að á Íslandi verði stofnaður samfélagsbanki eins og eru starfræktir í löndunum í kringum okkur. Við ætlum að afnema verðtrygginguna á neytendalánum og að vextir verði hóflegir.

Við viljum vinda ofan af lífeyrissjóðakerfinu sem er orðið ríki í ríkinu. Við viljum eitt sameinað lífeyriskerfi þar sem allir hafa sama rétt. Við viljum raunverulegt lýðræði innan lífeyrissjóðakerfisins.

Á Íslandi er stór hópur fólks sem á ekki fyrir brýnum nauðsynjum en það er ólíðandi hjá svo ríkri þjóð. Við viljum taka á þessum framfærsluvanda með því að reikna út hvað það kostar að lifa mannsæmandi lífi og tryggja síðan að enginn fái minna en það viðmið segir til um. Þannig verði öllum tryggð viðunandi framfærsla. Það er með öllu ólíðandi að stór hópur öryrkja og eldri borgara lifi undir fátækramörkum og að hér séu rúmlega sex þúsund börn sem lifa við fátækt.

Húsnæðisöryggi er mannréttindi og þess vegna leggjum við ríka áherslu á að auka valkosti á leigumarkaði. Við viljum skapa rými fyrir óhagnaðardrifin húsnæðissamvinnufélög.

Við viljum stokka upp stjórn fiskveiða og þá viljum við að jafnræði ríki meðal landsmanna um nýtingu á sameiginlegum fiskveiðiauðlindum. Við viljum að allur fiskur verði seldur á fiskmörkuðum og auðlindagjald reiknað af því fiskverði. Við viljum að handfæraveiðar verði gefnar frjálsar.

Við viljum að orkufyrirtæki eins og Landsvirkjun verði í eigu þjóðarinnar. Við viljum að ríkið sjái um að veita landsmönnum grunnþjónustu eins og mennta- og heilbrigðisþjónustu og að allir hafi sama rétt óháð efnahag eða búsetu.

Við leggjum ríka áherslu á lýðræðisumbætur og viljum nýja stjórnarskrá fyrir þjóðina. Við viljum virða þann ríka vilja sem kom fram í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október 2012.

Dögun er róttækt stjórnmálaafl aðallega vegna þess að við ætlum að vinna fyrir hagsmuni almennings með því að breyta fyrrnefndum atriðum. Við köllum eftir fólki til samstarfs sem vill það sama og er reiðubúið að vinna heilshugar að þessum breytingum. Kjósandi góður, það ert þú einn sem getur veitt okkur vald til að koma þessu til leiðar. Dögun biður því um liðsinni þitt.




Skoðun

Sjá meira


×