Þau eru að lýsa nýju dansverki sem þau hafa búið til og verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins á laugardaginn klukkan eitt. Bæði eru þau dansarar við Íslenska dansflokkinn og verða sjálf í hlutverkum Óðs og Flexu – sem reyndar hafa ofurhetjukrafta eins og flestir krakkar.
Óður og Flexa halda afmæli er fyrsta frumsamda dansverkið fyrir börn sem Íslenski dansflokkurinn sýnir í fimmtán ár og það verður á fjölunum allar helgar í febrúar. Þau Hannes Þór og Þyri Huld sömdu það upp úr öðru verki sem þau sýndu bæði á Assitej-barnasviðslistahátíð og Barnamenningarhátíð 2014. Þau segja smá trúðsleik í dansinum en ekkert talað mál, heldur tjái persónur sig með hljóðum og auðvitað hreyfingum.
„Dans fær börn til að nota ímyndunaraflið. Þau geta séð svo margt út úr hlutunum,“ segir Þyri Huld. „Svo er tónlistin stór þáttur í verkinu, við notum klassíska tónlist og hún teiknar upp hreyfingarnar.“
Bæði telja þau Hannes Þór og Þyri Huld afar jákvætt að Íslenski dansflokkurinn sinni börnum landsins og fái þau ung á sýningar, þannig ali hann upp framtíðaráhorfendur.

Þyri Huld kveðst hafa verið í ballett og djassballett sem barn. „Elsti bróðir minn var í breikdansi og það fannst mér mjög töff. Þar sá ég að það var hægt að gera eitthvað svalt með dansinum.“
En hvaða aldri er sýningin þeirra ætluð? „Við segjum að hún sé fyrir þriggja til níu ára en erum búin að fá börn á öllum aldri á æfingarnar, allt frá eins árs og upp úr og þau virðast öll hafa gaman af,“ segir Þyri Huld. „Já,“ segir Hannes Þór. „Þetta er fjölskyldusýning og miðaverðið bara 2.500 krónur.