Innlent

Fjögur börn á Akranesi hafa slasast eftir skemmdarverk á reiðhjólum þeirra

Anton Egilsson skrifar
Átt var við reiðhjól nemenda í Grundaskóla á Akranesi.
Átt var við reiðhjól nemenda í Grundaskóla á Akranesi. Vísir/Vilhelm
Að minnsta kosti fjórir nemendur Grundaskóla á Akranesi hafa slasast á undanförnum vikum sökum þess að skemmdarverk hafa verið unnin á reiðhjólum þeirra. Losað hafði verið um festingar á framdekkjum hjólanna og átt við bremsubúnað þeirra með þeim afleiðingum að börnin hafa slasast við það að falla af hjólum sínum. Skessuhorn greinir frá þessu.

Í bréfi sem skólinn sendi til foreldra barna í skólanum vegna þessa segir að lögregla hafi verið fengin til að ræða við nemendur á miðstigi og unglingastigi um alvarleika slíkra skemmdarverka. Kom lögregla meðal annars inn á það í samtali sínu við nemendur að skemmdarverk líkt og þessi hafi leitt af sér mjög alvarleg slys í gegnum tíðina, jafnvel dauðslys.

„Við lítum þetta mjög alvarlegum augum og viljum gera allt til að uppræta svona hegðun sem fyrst. Við viljum biðja ykkur foreldra/forráðamenn að ræða þetta mál heima og ekki síst brýna fyrir börnunum að athuga vel með hjólin sín áður en byrjað er að hjóla“ segir jafnframt í bréfi skólans til foreldra.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×