Nautabani rekinn á hol í beinni útsendingu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 9. júlí 2016 23:40 Félagar Barrio sjást hér bera hann helsærðan af velli. vísir/epa
Victor Barrio, 29 ára gamall spænskur nautabani, lést í dag þegar hann var rekinn á hol af nauti. Atvikið átti sér stað í bænum Teruel á nautaatssýningu. Atið var sýnt í beinni útsendingu í sjónvarpi. Þetta kemur fram á vef BBC. Þetta er í fyrsta skipti á þessari öld sem nautabani lætur lífið í baráttu við andstæðing sinn. Í raun eru rúm þrjátíu ár síðan það gerðist síðast. Samkvæmt samantekt blaðsins El Pais hafa 134 manneskjur á Spáni, þar af 33 nautabanar, fallið fyrir hornum nauta á síðustu hundrað árum.Mis condolencias a la familia y los compañeros de Víctor Barrio, torero fallecido está tarde en Teruel. Descanse en paz. MR — Mariano Rajoy Brey (@marianorajoy) July 9, 2016 Um tvöþúsund nautaöt fara fram á Spáni árlega en þeim fer sífækkandi. Tvö héruð, Kanaríeyjar og Katalónía, hafa bannað slíka viðburði en önnur hafa ekki gengið svo langt. Andstæðingar nautahlaupa og nautaata segja að viðburðirnir séu villimannslegir og ómannúðlegir. Aðdáendur þeirra, þar á meðal er forsætisráðherrann Mariano Rajoy, segja hins vegar að forna hefð sé listræn og samtvinnuð sögu og menningu þjóðarinnar. Í gær lést maður í nautahlaupi í Pedreguer eftir að hafa fengið nautshorn í gegnum hálsinn. Sá hafði beygt sig niður til að huga að öðrum hlaupara. Sama dag særðust fjórtán, þar af tveir alvarlega, í öðru nautahlaupi í Pamplona.Barrio í öðru nautaati sem fram fór í maí. Þar var það nautið sem féll en ekki nautabaninn.vísir/epa
Mest lesið Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Innlent Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Erlent Vísar orðum Jóns um nýja Ölfusárbrú á bug Innlent Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni Innlent Hér sést risaþotan taka á loft frá Keflavíkurflugvelli Innlent Féll af steini við Seljalandsfoss Innlent Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Erlent Þrír í haldi í fíkniefnamáli Innlent Minnast Bryndísar Klöru með tónleikum: „Fallegt hvað allir stóðu saman“ Innlent Keyrt á tvo unga drengi Innlent Fleiri fréttir Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Sjá meira