Þúsundir flóttamanna flýja í átt að landamærum Tyrklands eftir óvænta árás ISIS Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. apríl 2016 19:14 Frá flóttamannabúðum í grennd við Azaz. Vísir/Getty
Allt að fimm þúsund flóttamenn stefna nú í átt að landamærum Tyrklands frá norðurhluta Sýrlands eftir að ISIS hóf óvænta árás á samfélög og flóttamannabúðir sem höfðu hýst flóttamennina. Árás ISIS á flóttamennina kemur í kjölfar þess að vígasamtökunum tókst að sporna við sókn sýrlenskra stjórnarandstæðinga sem komist höfðu nálægt bænum Dabiq í norðurhluta Sýrlands. Dabiq hefur mikið táknrænt gildi fyrir samtökin en leiðtogar hópsins trúa því að þar muni eiga sér stað mikil átök sem boða muni ragnarök.Gagnsókn ISIS virðist hafa komið stjórnarandstæðingum í opna skjöldu. Að minnsta kosti fimm þúsund flóttamenn yfirgáfu allt að tíu flóttamannabúðir vegna sóknar ISIS. Héldu þeir í átt að landamærum Tyrklands, nærri bænum Azaz. Þar hafa landamærin verið lokuð stærstan hluta ársins og svo virðist sem að tyrkneskir landamæraverðir hafa skotið að flóttamönnunum sem streymdu í átt að landamærunum í von um að komast yfir til Tyrklands. Um 30 þúsund flóttamenn frá Sýrlandi hafast við í Azaz en Tyrkir hafa gefið það út að ríkið muni halda áfram að neita flóttamönnum inngöngu í landið. Samkvæmt tölum frá Flóttamannastofnum Sameinuðu þjóðanna eru um 1,8 milljónir flóttamanna nú í Tyrklandi.
Flóttamenn Mið-Austurlönd Mest lesið „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvað grín“ Innlent „Viltu ekki tala við mig eins og ég sé gamalmenni“ Innlent „Við þrífumst ekki til lengdar ein“ Innlent „Í guðanna bænum höldum vöku okkar við aksturinn" Innlent Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Erlent Allt í rugli á Rauðahafi Erlent Von á allhvössum vindi og rigningu Veður Ný stjórn Ríkisútvarpsins kjörin Innlent Hraðbankinn enn ekki látinn í friði Innlent Vill taka upp stöðvarskyldu tveimur árum eftir að hún var afnumin Innlent Fleiri fréttir Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Fella niður hluta ákæru á hendur meintum sveppamorðingja Íhuga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Orsakir rafmagnsleysisins sögulega enn óþekktar Fjórir létust þegar bíl var ekið í gegnum frístundaheimili Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Spennan eykst milli Indlands og Pakistan Allt í rugli á Rauðahafi Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Lýsir yfir einhliða vopnahléi vegna sigurhátíðar í næstu viku Rafmagnsleysið „fordæmalaust“ en engar vísbendingar um tölvuárás Páfakjör hefst í næstu viku Umfangsmiklar og óútskýrðar rafmagnstruflanir á Íberíuskaga Mæðgur alvarlega særðar eftir sprengingu í úthverfi Stokkhólms Rússar segjast hafa handsamað morðingja herforingjans Ökumaðurinn í Vancouver ákærður fyrir manndráp Sixtínsku kapellunni lokað vegna páfakjörs Telur að Selenskí geti samþykkt að gefa eftir Krímskaga Kjördagur framundan í Kanada Vissu ekki að þeir væru að ræna Kim Kardashian Ellefu manns látnir og talan gæti hækkað Rúmur helmingur óhress með Trump Eðlilegt að endurskoða sjálfstjórnarlögin Framtíðin sé járntjald frá Finnlandi niður að Svartahafi Gröf Frans páfa opin gestum Bréf ritað um borð í Titanic seldist á tugi milljóna Sprenging í Íran varð 25 að bana Sjá meira