Einn af þessum þremur verður kosinn besti leikmaður heims Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. desember 2016 15:10 Þrír bestu knattspyrnumenn heims. Vísir/Getty
FIFA hefur tilkynnt það hvaða þrír leikmenn koma til greina sem besti knattspyrnumaður heims í ár. Valið að þessu sinni stendur á milli þeirra Lionel Messi, Cristiano Ronaldo og Antoine Griezmann. Þeir spila allir með spænskum liðum. Lionel Messi og Cristiano Ronaldo hafa verið að skiptast á því að vinna titilinn besti knattspyrnumaður heims en Frakkinn Antoine Griezmann hafði betur í baráttunni við „hina“ um þriðja sætið á tilnefningalistanum. 23 leikmenn komu til greina en núna er búinn að skera niður í þrjá bestu menn heims. Sigurvegarinn verður síðan krýndur við viðhöfn í Zürich 9. Janúar næstkomandi. Cristiano Ronaldo er sigurstranglegur enda lykilmaður hjá bæði Real Madrid og portúgalska landsliðinu sem unnu tvær stærstu keppnir UEFA á árinu. Real Madrid vann Meistaradeildina og Portúgal varð Evrópumeistari. Lionel Messi hjálpaði Barcelona að vinna tvöfalt á Spáni og hann fór alla leið í úrslitaleik hundrað ára afmælisútgáfu Suður-Ameríkukeppninnar. Antoine Griezmann varð markakóngur EM í Frakklandi og fór með liðum sínum í bæði úrslitaleik Meistaradeildarinnar (Atletico Madrid) og úrslitaleik EM (Frakkland).
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Fleiri fréttir Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Sjá meira