Erlent

Þrjátíu látnir eftir sjálfsmorðsárás á fótboltavelli

Írakskir lögreglumenn.
Írakskir lögreglumenn. vísir/epa
Að minnsta kosti þrjátíu létu lífið og yfir sextíu og fimm særðust í sjálfsmorðssprengjuárás á knattspyrnuvelli í þorpi suður af Bagdad í Írak í dag. Árásarmaðurinn sprengdi sig í loft upp þegar verið var að veita sigurliðinu verðlaun.

Enginn hefur lýst tilræðinu á hendur sér en nær allar nýlegar árásir sambærilegar þessari hafa verið á ábyrgð Íslamska ríkisins.

Bæjarstjórinn er á meðal hinna látnu en hann lést á sjúkrahúsi eftir að hafa hlotið alvarlega áverka í sprengingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×