Menning

Alltaf gaman að taka lagið

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ásrún er lengst til hægri, hinar eru Sibylle Köll söngstjóri og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari sem munu kynna  nemendaóperuna í dag.
Ásrún er lengst til hægri, hinar eru Sibylle Köll söngstjóri og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari sem munu kynna nemendaóperuna í dag. Vísir/Ernir
„Það verður opið hús hjá okkur milli tvö og fimm og margt á dagskránni, allt frítt,“ segir Ásrún Davíðsdóttir, aðstoðarskólastjóri Söngskólans í Reykjavík og lýsir nánar því sem framundan er.

 „Við verðum með sex stutta einsöngstónleika, þar verða ljóð, aríur, söngleikjamúsík og dagskrá helguð Mozart, svo nokkuð sé nefnt.  Einnig verða sýnishorn úr nemendaóperunni Töfraheimur prakkarans eftir Ravel, sem var sýnd tvívegis í Hörpu um síðustu helgi við góðar undirtektir og unglingadeildin treður upp með atriði úr Kalla og sælgætisgerðinni eftir Hjálmar H. Ragnarsson.

Svo ætlar Garðar Cortes sjálfur að stjórna fjöldasöng sem allir geta tekið þátt í. Þar verða lög tengd árstímanum í hávegum höfð og fólki verður kennt að syngja Tyrkjamessu sem nemendur úr unglingadeild skólans verða forsöngvarar í. Það er alltaf gaman að taka lagið.“

Á milli tónleikanna geta gestir dreypt á súkkulaði, kaffi og gosdrykkjum og borðað nýsteiktar kleinur, að sögn Ásrúnar sem segir alla velkomna meðan húsrúm leyfi, bæði til þátttöku og áheyrnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.