„Það er auðvitað hundfúlt að meiðast svona en það er lítið við þessu að gera. Svona er sportið,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins, en hann ristarbrotnaði í leiknum gegn Noregi á þriðjudag.
„Ég veit eiginlega ekki hvernig þetta gerðist. Ég var að hlaupa til baka og virðist hafa rekist í annan mann og komið eitthvað vitlaust niður. Það er afar sérstakt að meiðast svona en það hefur nú loðað við mig að lenda í sérstökum meiðslum þá sjaldan ég meiðist. Ég hef verið heppinn hvað meiðsli varðar í gegnum tíðina.“
Farið var með Snorra upp á sjúkrahús í Þrándheimi þar sem í ljós kom að hann var ristarbrotinn. Læknir landsliðsins, Brynjólfur Jónsson, mun skoða myndirnar af Snorra og svo hitta hann í dag til þess að ákveða framhaldið.
„Það á eftir að taka ákvörðun með framhaldið en við förum yfir þetta saman og í samráði við félag mitt í Frakklandi. Það lítur út fyrir að ég gæti sloppið við aðgerð en þó ekki hægt að fullyrða um það á þessari stundu. Það þarf að skoða þetta allt betur áður,“ segir Snorri en læknar segja að þetta geti þýtt að hann verði frá í að minnsta kosti átta til tíu vikur. Snorri er þó vongóður um að hann geti snúið fyrr til baka.
„Ég held í vonina um að ná einhverjum leik eða leikjum á þessum mánuði sem er eftir af tímabilinu. Svo eru auðvitað mikilvægir leikir með landsliðinu í júní sem ég vil helst taka þátt í. Ég reyni að vera jákvæður og vonandi fæ ég einhver jákvæð svör eftir fundi mína með lækninum.“
