Enski boltinn

Fjórir í röð hjá United | Sjáðu mörkin

Manchester United er heldur betur að rétta úr kútnum, en þeir hafa nú unnið fjóra leiki í röð í ensku deildinni eftir 3-1 sigur á Sunderland.

Daley Blind kom United yfir á 39. mínútu með þrumuskoti í hornið eftir sendingu frá Zlatan Ibrahimovic og staðan var 1-0 í hálfleik.

Zlatan skoraði svo sjálfur næsta mark þegar hann slapp einn í gegn eftir sendingu frá Paul Pogba. Þriðja markið skoraði svo Henrik Mkhitaryan, en hann skoraði með stórbrotinni hælspyrnu.

Fabio Borini minnkaði muninn fyrir Sunderland með frábæru skoti fyrir utan teig, en hann þrumaði boltanum upp í hornið. Lokatölur 3-1.

United er nú í sjötta sæti deildarinnar með 33 stig, jafn mörg og Tottenham sem er í sætinu fyrir ofan. Tottenham á þó leik til góða. Sunderland er í 18. sæti með 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×