Konur í fyrsta sinn jafn mikið fyrir sopann og karlar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 25. október 2016 08:35 Konur drekka nánast jafn mikið og karlar, samkvæmt rannsókninni. vísir/getty
Konur drekka nú næstum því jafn mikið og karlar, samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn. Það er í fyrsta sinn í sögunni því hingað til hafa karlar verið mun meira fyrir sopann. Rannsóknin var afar viðamikil en hún náði til fjögurra milljón karla og kvenna sem fædd eru á aldursbilinu 1891 til 2001. Samkvæmt henni drukku karlar áður mun meira en konur og glímdu frekar við áfengistengda sjúkdóma. Í dag er þetta bil á milli kvenna og karla svo gott sem horfið og er breytt staða kynjanna ein breytan sem sögð er skýra þetta, auk þess sem auglýsingar og aukið aðgengi er sagt hafa áhrif. Um aldamótin 1900 voru karlmenn tvöfalt líklegri til þess að drekka áfengi en konur, og þrefalt líklegri til þess að drekka í óhófi. Þá voru þeir 3,6 sinnum líklegri til þess að þróa með sér áfengistengda sjúkdóma á borð við skorpulifur. Hjá nýjustu kynslóðinni hins vegar eru karlar 1,1 sinni líklegri til þess að drekka, 1,2 sinnum líklegri til þess að drekka í óhófi og 1,3 sinnum líklegri til þess að þróa með sér drykkjusjúkdóma. Rannsakendur skoðuðu gögn frá öllum heimshlutum, en bróðurpartur þeirra var þó frá Norður-Ameríku og Evrópu. Í niðurstöðum þeirra segir að áður hafi áfengisdrykkja verið talin karlavandamál, en að nú sé staðan önnur. Hlutverk kynjanna hafi breyst á undanförnum áratugum en að jafnframt hafi aukið aðgengi áhrif. Áfengi sé í auknum mæli markaðssett að konum, þá einkum ungum konum. Rannsakendurnir segja mikilvægt að fræðsla verði aukin þannig að fólk skilji hættuna sem fylgi áfengisneyslu.
Mest lesið Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Innlent Ungur ökumaður ekki grunaður um akstur undir áhrifum Innlent Telur lykilspurningum um banaslysið enn ósvarað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Fimmti hver ökumaður með óeðlileg afskipti við slysstað Innlent Blöskrar „tvískinnungur“ hjá borgarfulltrúa eftir banaslys Innlent Hreinsaður af ásökunum eiginkonu sveitarstjórans Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fleiri fréttir Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Sjá meira