
Hvernig innleiðum við nýja stjórnarskrá á Íslandi?
Hvernig tökum við tillit til þessara andstæðu póla og innleiðum nýja stjórnarskrá í stjórnkerfi íslensks samfélags á faglegan máta?
Ég hef starfað í fluggeiranum í rúm 10 ár og hef kynnst því tæknilega og lagalega flókna umhverfi sem er í kringum hann. Ég get ímyndað mér að hægt sé yfirfæra þá reynslu sem ég hef öðlast þar yfir í landslögin og íslenskt stjórnsýsluumhverfi því ég sé mikil líkindi með þessum tveimur heimum.
Í flugheiminum er mikið verið að breyta lögum og stöðugt verið aðlaga flugumhverfið að tækniþróun samtímans. Við lagasetningu er oft gefinn ákveðinn aðlögunartími fyrir flugfélög, flugvelli, flugumferðarstjórn og fleiri hagsmunaaðila. Þessi aðlögunartími getur verið stuttur og svo alveg upp í mörg ár. Mögulega þurfa að vera sambærileg vinnubrögð við innleiðingu nýrrar stjórnarskrár á Íslandi eins og þekkist við innleiðingu löggjafar í fluggeiranum. Mögulega þarf að vera einhvers konar aðlögunartími fyrir ríkisstofnanir, atvinnulífið og samfélagið í heild við innleiðingu á stjórnarskránni.
Þrátt fyrir að það sé ekki augljóst að innleiðing á nýrri stjórnarskrá geti haft miklar breytingar á ferli og kerfi samfélagsins þá tel ég það vera skyldu stjórnvalda, sama hverjir eru í stjórn, að gera svona víðtækar breytingar á sem skynsamlegastan hátt heildinni í hag. Það sem þarf að gera við innleiðingu nýrrar stjórnarskrár er að meta þá áhættuþætti sem geta komið upp við innleiðingu hennar og bregðast við ef á þarf að halda. Til dæmis gæti þurft að breyta mörgum tölvukerfum í landinu, án þess að ég viti það í dag, eða að það þyrfti að búa til regluverk utan um framkvæmd ákveðinna mála sem eru frekar almenn í nýju stjórnarskránni.
Að mínu mati þarf að fara yfir hvern kafla nýju stjórnarskrárinnar og gera þær greiningar sem þekkjast í almennum stjórnunarfræðum í dag. Að vinna þessa vinnu getur tekið tíma en yrði aldrei lengur en eitt kjörtímabil. Ég myndi telja að stofna yrði sérstakan vinnuhóp fyrir þessa vinnu og að opið og gagnsætt umsóknarferli færi af stað við að ráða fólk í þennan hóp. Hópurinn hefði tiltekinn tíma og markmið fyrir hvern kafla fyrir sig og heildartími yfirferðarinnar væri skilgreindur. Vinnuhópurinn myndi skila af sér viðbragðsáætlun eftir hvern kafla sem hægt væri að vinna úr um leið og hópurinn skilaði áætluninni af sér.
Eftir þessa yfirferð yrði alveg ljóst hvað þyrfti að gera til að innleiða þessa nýju stjórnarskrá og vonandi þyrfti að breyta sem minnstu í þjóðfélaginu.
Eigum við ekki að gera þetta skynsamlega? Verum vel undirbúin ef þörf krefur í stað þess að gera hlutina ómarkvissa í upphafi og þurfa svo að bregðast við eftir á. Innleiðum nýja stjórnarskrá á vel skipulagðan og ígrundaðan hátt til að sem flestir geti verið sáttir við nýja stjórnarskrá íslenska lýðveldisins.
Píratar standa fyrir gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir en það eru einmitt þau gildi sem ég hef tileinkað mér á vinnumarkaði. Verklagið sem hér hefur verið útlistað er lýsandi dæmi fyrir starfsaðferðir mínar og mun ég viðhalda þeim í starfi þingmanns Pírata, fái ég umboð Pírata til þess.
Skoðun

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref!
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar

Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð
Ólafur Sigurðsson skrifar

Öllum til hagsbóta að bæta hag nýrra Íslendinga
Marta Wieczorek skrifar

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

(Ó)merkilegir íbúar
Örn Smárason skrifar

Vangaveltur um ábyrgð og laun
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar