Starfsfólk leikskóla barnsins fann bílinn við Krónuna í Kórahverfi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. ágúst 2016 16:33 Maðurinn sem stal bílnum fór ekki langt á honum. vísir/map.is
Búið er að handtaka mann sem stal bíl með tveggja ára barni við leikskóla í Rjúpnasölum klukkan 15:18 í dag. Maðurinn hefur komið við sögu lögreglu áður og tengist hann ekki fjölskyldu barnsins á neinn hátt. Bílnum var stolið á meðan faðir barnsins fór inn á leikskólann að sækja eldra barn sitt en þegar hann kom út var bíllinn horfinn. Barnið sem beðið hafði í bílnum hafði verið í aðlögun á leikskólanum fyrr um daginn. „Hann keyrir upp að Krónunni í Kórahverfinu og fer þar inn að versla. Þar á bílaplaninu finnst bíllinn en það er starfsfólk leikskólans sem sér bílinn við verslunina og hringir á okkur,“ segir Gunnar Hilmarsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. Barnið var sem betur fer heilt á húfi en talið er að það hafi verið sofandi á meðan á öllu þessu stóð. Maðurinn var handtekinn skömmu eftir að bíllinn fannst. Aðspurður hvernig foreldrum barnsins hafi liðið segir Gunnar að þeim hafi að sjálfsögðu verið mjög brugðið. „Og það var í raun öllum mjög brugðið. Það er ekki á hverjum degi sem þetta gerist, sem betur fer, og það fór allt tiltækt lið af stað auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðaði við leitina,“ segir Gunnar.
Tengdar fréttir Bifreið með barni stolið í Kópavogi Bíl sem stolið var í Salahverfi í Kópavogi fannst um hálftíma síðar í Kórahverfinu. 17. ágúst 2016 15:39 Mest lesið Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Innlent Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Innlent Útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi Erlent Framtíð Grænlands ráðist í Grænlandi Innlent Krefji Eddu um margfalt hærri upphæð en eðlilegt sé Innlent Hafi þurft að þola ómannúðlega meðferð sem dró hann til dauða Innlent „Hann kom víða við og snerti marga“ Innlent Fimm sækjast eftir embætti Landlæknis Innlent Götulokanir á Akureyri vegna tilfærslu sprengjunnar Innlent Geta loksins kvatt drenginn sinn heima á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn Krefjast upptöku á aragrúa gullmuna í fíkniefnamáli tvíbura Framtíð Grænlands ráðist í Grænlandi Götulokanir á Akureyri vegna tilfærslu sprengjunnar Hafi þurft að þola ómannúðlega meðferð sem dró hann til dauða Stefnir ríkinu vegna plastbarkamálsins „Hann kom víða við og snerti marga“ Fimm sækjast eftir embætti Landlæknis „Þetta er sannarlega mikill heiður“ Innri endurskoðun tekur ferlíkið við Álfabakka fyrir Bjarni misst stuðning úr sínum kjarnahópi Krefji Eddu um margfalt hærri upphæð en eðlilegt sé Guðmundur Ari þingflokksformaður og Dagur kemst ekki á blað Togari kom með sprengju til hafnar á Akureyri Formannsslagur í uppsiglingu eftir brotthvarf Bjarna Fjögur hundruð milljónir fara „dönsku leiðina“ í Úkraínu Hyggst leggja til rammaáætlun á vorþinginu Segir brotthvarf Bjarna breyta pólitíska landslaginu Orkumálin verði ofarlega á lista ríkisstjórnarinnar Þorgerður Katrín í Úkraínu Geta loksins kvatt drenginn sinn heima á Íslandi Kennari fékk ekki að bregðast við slæmum umsögnum í ráðningarferli „Græna gímaldið“ minni helst á braggamálið og ábyrgðin liggi hjá borgarstjóra Farið yfir feril Bjarna: Spáði því að hann ætti nóg eftir fyrir átján árum Eldur í sjö ruslagámum á einum sólarhring Eldur í bifreið og útihúsgögnum Ýmsar ívilnanir til handa læknum á landsbyggðinni í skoðun Eldur í „flugeldagámi“ við Klambratún Má heita Amína en ekki Hó Aldrei verið skráð fleiri manndrápsmál Sjá meira
Bifreið með barni stolið í Kópavogi Bíl sem stolið var í Salahverfi í Kópavogi fannst um hálftíma síðar í Kórahverfinu. 17. ágúst 2016 15:39