Fimmtán mánaða fangelsi fyrir ítrekuð brot gegn eiginkonu og stjúpdætrum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 12. október 2016 11:56 Maðurinn braut ítrekað gegn konunni og stjúpdætrum sínum. vísir/valli
Karlmaður sem ákærður var fyrir fjölmörg brot á hendur eiginkonu sinni og tveimur stjúpdætrum á sex ára tímabili var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi. Honum var gert að greiða konunni 200 þúsund krónur í bætur og stjúpdætrum sínum samtals 1,7 milljónir. Hann var hins vegar sýknaður af ákærulið er sneri að nauðgun gegn konunni. Maðurinn var sakaður um að hafa beitt stjúpdætur sínar kynferðislegri áreitni, meðal annars með því að senda þeim fjölmörg smáskilaboð þar sem hann viðhafði kynferðislegt og klámfengið orðbragð. Mörg skilaboðanna innihéldu jafnframt hótanir um kynferðisbrot sem voru til þess fallnar að vekja ótta um líf, heilbrigði og velferð, að því er segir í ákærunni. Aldur stúlknanna er ekki tiltekinn í ákærunni. Maðurinn var úrskurðaður í nálgunarbann í Héraðsdómi Reykjavíkur 7. mars síðastliðinn, sem í kjölfarið var staðfest af Hæstarétti. Hann braut hins vegar nálgunarbannið samdægurs með því að setja sig í samband við mæðgurnar og með því að fara inn í anddyrið á stigagangi þeirra. Í ákærunni segir að maðurinn hafi hringt 566 sinnum í heimasíma konunnar á tímabilinu 7. mars til 22. mars. Þá hafi hann sent stjúpdætrum sínum á tímabilinu 7. mars til 1. júní samtals 636 smáskilaboð. Mæðgurnar fóru fram á alls átta milljónir króna í bætur, en sem fyrr segir er manninum gert að greiða þeim alls tæplega tvær milljónir króna. Þá var honum gert að greiða einn þriðja af sakarkostnaði málsins sem nam 8,5 milljónum króna.
Tengdar fréttir Sakaður um að hafa ítrekað kúgað konu sína til kynferðislegra athafna Ákærður fyrir fjölmörg brot gagnvart eiginkonu sinni og tveimur stjúpdætrum. 8. september 2016 13:32 Mest lesið Arndís Anna hyggst ekki bjóða sig fram aftur Innlent Meintur nethrellir fær bætur vegna húsleitar Innlent Starfsstjórn með nýjum forsætisráðherra „bara einhver furðukenning“ Innlent Þykir leitt hvernig kennarar túlkuðu orð sín Innlent Mikið undir á fyrsta sáttafundi eftir verkfallsboðun Innlent „Loksins!“ segja ungir sjálfstæðismenn Innlent Íslendingur bannaður á djamminu í Danmörku Innlent Ekki einhugur meðal formanna flokkanna um framhaldið Innlent Dagbjört stendur við færsluna sem hún eyddi Innlent Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Innlent Fleiri fréttir Mikið undir á fyrsta sáttafundi eftir verkfallsboðun Arndís Anna hyggst ekki bjóða sig fram aftur Meintur nethrellir fær bætur vegna húsleitar „Loksins!“ segja ungir sjálfstæðismenn Starfsstjórn með nýjum forsætisráðherra „bara einhver furðukenning“ Ekki einhugur meðal formanna flokkanna um framhaldið Þykir leitt hvernig kennarar túlkuðu orð sín Sér Sigurð Inga alveg fyrir sér sem forsætisráðherra Dagbjört stendur við færsluna sem hún eyddi Viðbrögð stjórnarandstöðunnar, rödd almennings og landsleikur Afar spenntur fyrir minnihlutastjórn Íslendingur bannaður á djamminu í Danmörku „Ekkert eðlilega leiðinleg, þessi ríkisstjórn“ Allar líkur á samþykki forseta og að stjórnin sitji til kosninga Blönduð leið líkleg hjá Viðreisn og barátta um oddvitasætin „Við erum ekkert ofboðslega hrifin af þessari dramatík“ Staðan óljós eftir atburðarás gærdagsins Jón Gnarr kennir í brjósti um Einar arftaka sinn Hnífstunguárás í gistiskýlinu „Við þurfum að flýta okkur hægt í þessari stöðu“ Það henti VG að vera í „svolitlum slag“ við Sjálfstæðisflokkinn Skondið að sjá ágreininginn koma upp á yfirborðið Stuttur tími til að „komast í kjólinn fyrir jólin“ Pallborðið: Hvað segir stjórnarandstaðan um útspil Bjarna? Óvissa í efnahagslífinu og erfitt að sjá að verðbólga hjaðni nú Annar fyrrverandi Miðflokksmaður til liðs við Arnar Þór Forseti fundar með formönnum Uppstilling á framboðslista „ekki A-kostur“ „Svívirðileg móðgun við kennara“ „Mér gæti ekki verið meira sama um alla spekingana“ Sjá meira
Sakaður um að hafa ítrekað kúgað konu sína til kynferðislegra athafna Ákærður fyrir fjölmörg brot gagnvart eiginkonu sinni og tveimur stjúpdætrum. 8. september 2016 13:32