Raggi líklega fyrsti kvenkyns borgarstjóri Rómar Bjarki Ármannsson skrifar 19. júní 2016 09:51 Hin 37 ára Raggi býður sig fram fyrir hina svokölluðu Fimm stjörnu hreyfingu, stjórnmálaflokk sem grínistinn Beppe Grillo stofnaði og á að berjast gegn rótgrónni spillingu þar í landi. Vísir/EPA
Allar líkur eru á að Róm, höfuðborg Ítalíu, eignist í dag sinn fyrsta kvenkyns borgarstjóra frá upphafi en lögfræðingurinn Virginia Raggi nýtur góðs forskots fyrir síðari umferð borgarstjórnarkosninganna. Hin 37 ára Raggi býður sig fram fyrir hina svokölluðu Fimm stjörnu hreyfingu, stjórnmálaflokk sem grínistinn Beppe Grillo stofnaði árið 2009 og á að berjast gegn rótgróinni spillingu þar í landi. Nái Raggi kjöri, verður það að teljast nokkuð áfall fyrir Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu, fyrir þingkosningarnar á næsta ári. Frambjóðendur Demókrataflokks Renzi virðast hvorki ætla að ná kjöri í höfuðborginni né í fjármálamiðstöðinni Mílanó. Rómarbúar hafa fengið sig fullsadda af lélegri sorphirðu, velferðarþjónustu og vegaumhirðu undanfarin ár, að því er segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins um málið. Borgin skuldar sem nemur nærri tvö þúsund milljörðum íslenskra króna og hefur verið án borgarstjóra frá því í október síðastliðnum þegar síðasti borgarstjórinn, Ignazio Marino, sagði af sér í vegna spillingarhneykslis. Enn stærra hneyksli hefur þó ýtt undir vinsældir Fimm stjörnu hreyfingarinnar í Róm en það varðar meint áhrif ítölsku mafíunnar í borgarstjórn Rómar. Gæti það orðið til þess að fleyta Raggi alla leið í borgarstjórasætið og gera Fimm stjörnu hreyfinguna að stærsta stjórnarandstöðuflokki fyrir kosningarnar á næsta ári.
Mest lesið Vill hætta við nýja brú yfir Ölfusá og spara milljarða króna Innlent 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Erlent Starfsfólk Ítalíu vill bíl Eflingar burt Innlent Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga Innlent Býst við þremur áminningum til og hjólar í lögmannanefnd Innlent Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum Innlent Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi Innlent List í anda frægustu orða Vigdísar og allar slaufurnar á sama stað Innlent Þrettán fengið samtals 512 eldri orlofsdaga greidda við starfslok Innlent Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni Innlent Fleiri fréttir Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Sjá meira