Menning

Mínir innstu sálarstrengir 

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sigurður Helgi og Unnur Helga frumflytja í kvöld lög sem samin eru við ljóð þjóðskálda.
Sigurður Helgi og Unnur Helga frumflytja í kvöld lög sem samin eru við ljóð þjóðskálda.
„Þetta er frumraun mín sem tónskáld á opinberum vettvangi,“ segir Sigurður Helgi Oddsson um tónleika sína og Unnar Helgu Möller sópransöngkonu í Hannesarholti við Grundarstíg 10 í kvöld. Þar frumflytja þau einsöngslög eftir Sigurð Helga við ljóð Hannesar Péturssonar, Erlu og fleiri íslensk ljóðskáld. Tónskáldið verður á píanóinu.

 Sigurður Helgi er hálfur Húnvetningur og hálfur Akureyringur en býr nú í Reykjavík og starfar við undirleik, kórstjórn og kennslu, auk tónsmíðanna.  „Ég tel mig hafa erft músíkina frá ömmu á Hvammstanga og hennar fjölskyldu,“ segir Sigurður Helgi sem, eftir nám við tónlistarskóla Akureyrar, hélt út til Boston að læra píanóleik, hljómsveitarstjórn og kvikmyndatónsmíðar.

Í sköpuninni kveðst hann sækja í heimspekilegar hugmyndir um lífið og tilveruna, veruleikann og listina, sálina, sjálfið og alheiminn. „Tónlistin er mjög persónuleg og þetta er í fyrsta skipti sem fólk fær að kynnast mínum innstu sálarstrengjum,“ segir hann.

Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 20. Þeir verða endurteknir í Akureyrarkirkju á laugardaginn. „Unnur Helga er Akureyringur og Akureyri er minn annar heimastaður. Því vildum við drífa okkur norður sem fyrst,“ segir Sigurður Helgi til skýringar.



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 21. september 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.