Baráttan á milli Hamilton og Ricciardo stóð yfir frá því snemma í keppninni. Hamilton komst fram úr Ricciardo þegar Red Bull klúðraði þjónustuhléinu fyrir Ricciardo.
Mikil bleyta var á brautinni. Keppnin hófst því fyrir aftan öryggisbíl og ræsingin því viðstöðulaus eftir upphitunarhring. Einungis 15 ökumenn luku keppni, enda aðstæður afar erfiðar á brautinni sem fyrirgefur engin mistök.
Bilið á milli Rosberg og Hamilton í heimsmeistarakeppni ökumanna er komið niður í 26 stig. Hamilton vann í dag sína fyrstu kepni síðan í Austin í Texas í fyrra. Síðan þá hafa níu keppnir nú verið keyrðar.

Ökumenn fóru að heimta öryggisbílinn inn á sjötta hring. Bæði Hamilton og Kevin Magnussen komu í talstöðina og sögðu að skyggnið væri orðið nógu gott.
Öryggisbíllinn fór inn eftir sjö hringi. Ricciardo hélt forystunni í gegnum endurræsinguna. Jolyon Palmer hins vegar komst ekki í gegnum fyrstu beygju. Hann ók yfir gangbraut og það var of hált fyrir Formúlubíl í svona mikilli bleytu. Stafrænn öryggisbíll var settur í gang. En var stutta stund í gangi.
Sebastian Vettel setti milli regndekk undir Ferrari bílinn á 14. hring. Aðeins Magnussen hafði þá sett milliregndekkin undir. Brautin var að þorna og fleiri fylgdu á eftir á næstu hringjum.
Hamilton komst fram úr Nico Rosberg á 16. hring Hamilton stakk Rosberg strax af og hóf að elta Ricciardo. Mercedes liðið sagði Rosberg að hleypa Hamilton fram úr.
Kvyat keyrði á Magnussen á lokakafla brautarinnar. Magnussen tókst að bakka og halda áfram en Kvyat ók inn á þjónustusvæðið og hætti keppni.

Hamilton kom inn á hring 32 og setti últra-mjúku dekkin undir. Hamilton opnaði flóðgáttirnar. Red Bull liðið klúðrari gjörsamlega þjónustuhléinu fyrir Ricciardo sem hefði átt að ná að halda Hamilton fyrir aftan sig. Dekkin voru einfaldlega ekki tiltæk og þjónustuhléið tók alltof langan tíma.
Max Verstappen datt úr keppni eftir að hafa unnið sig upp í stigasæti eftir að hafa ræst á þjónustusvæðinu. Hann rann út á blautan hluta brautarinnar eftir að hafa læst dekkjunum í beygju.
Felipe Nasr var skipað af Sauber liðinu að hleypa Marcus Ericsson fram úr sér til að veita Ericsson tækifæri til að elta næstu menn. Sauber mennirnir lentu hins vegar saman þegar Ericsson ætlaði að fara fram úr. Áreksturinn batt enda á keppni beggja ökumanna.
Barátta Hamilton og Ricciardo var mikil, næstum alla keppnina. Baráttan um þriðja sætið harðnaði á síðustu fimm hringjunum. Perez varðist Sebastian Vettel afar vel.
Rosberg var ekki að finna taktinn í dag. Hann endaði sjöundi á eftir Nico Hulkenberg á Force India.
Hér fyrir neðan má sjá öll úrslit helgarinnar.