Innlent

Hæfi en ekki tilviljun réði ráðningu bæjarstjóra í forstjórastól

Heimir Már Pétursson skrifar
Formaður stjórnar Orkubús Vestfjarða segir alla stjórnarmenn nema einn hafa verið sammála um að ráða bæjarstjórann í Bolungarvík í starf forstjóra fyrirtækisins og því hafi verið ástæðulaust að ræða við aðra umsækjendur. Stjórnarmaður sagði af sér vegna ráðningarinnar.

Árni Brynjólfsson bóndi í Önundarfirði hefur sagt sig úr stjórn Orkubús Vestfjarða og Sjálfstæðisflokknum eftir að ákveðið var á símafundi stjórnarinnar á fimmtudag að ráða Elías Jónatansson bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík í starf forstjóra Orkubúsins. Með því hafi verið farið á skjön við fyrir fram ákveðið ráðningarferli þar sem stjórnin hafi átt að ræða við tvo til fjóra hæfustu umsækjendurna.

Aðrir í stjórn fyrirtækisins eru Daníel Jakobsson fyrrverandi bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og Viktoría Rán Ólafsdóttir frá Hólmavík. Viðar Helgason formaður stjórnar er síðan fulltrúi fjármálaráðherra í stjórninni.

Bæjarstjórinn í Bolungarvík var ráðinn með öllum atkvæðum nema Árna sem var á móti.

„Ég neita því ekki að mér finnst ég finna vonda lykt.“

Og þá pólitíska?



„Eða einhver önnur lykt sem við getum talað um. Ég er reyndar vanur fjósalykt.“

Þannig að þér finnst vera skítalykt af málinu?

„Ég ætla ekkert að tjá mig frekar um það,“ segir Árni og hlær.

Formaðurinn segir að nauðsynlegt hafi verið að ganga frá ráðningunni vegna fyrirsjáanlegra fjarveru tveggja stjórnarmanna á næstu vikum. Tveir umsækjendur hafi hentað best í starfið.

„Þá var alveg ástæðulaust að lengja það og fara að setja þá upp einhver viðtöl við umsækjendur, ef stjórnin var búin að mynda sér skoðun á málinu,“ segir Viðar.

Engum hafi verið hampað eða hafnað á grundvelli flokksskírteina. Stjórnarmenn hafi ýmist verið skipaðir í tíð ráðherra Vinstri grænna, Samfylkingarinnar eða Sjálfstæðisflokksins.

Þannig að þetta er bara ein af þessum skemmtilegum tilviljunum í lífinu?

„Þetta er ekki tilviljun. Þetta er niðurstaða á þessu ráðningarmati. Þar var búið að fara í gegnum tuttugu og fimm umsækjendur. Mjög frambærilega umsækjendur. Við höfðum eins og gengur og gerist í því mati skorið þann hóp niður eftir því hvern við teldum henta í starfið. Þetta var niðurstaðan,“ segir Viðar Helgason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×