Innlent

Stútur ók á kyrrstæðan bíl

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Maður sem grunaður er um ölvun við akstur ók á kyrrstæðan og mannlausan bíl í Keflavík á laugardagskvöldið. Bílinn sem hinn meinti stútur ók er gjöreyðilagður og þurfti að fjarlægja hann með dráttarbíl. Ökumaðurinn var handtekinn.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni missti annar ökumaður vald á bíl sínum í Njarðvík svo hann endaði á vegg. Það sama gerðist á Reykjanesbrautinni og endaði sá bíll í vegriði. Þar að auki lentu þrír bílar sem ekið var í átt til Grindavíkur í árekstri. Engan sakaði í þessum óhöppum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×