Erlent

Sprenging við strætóskýli í Tyrklandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá fyrri sprengjuárási í Diyarbakir.
Frá fyrri sprengjuárási í Diyarbakir. Vísir/EPA
Minnst fjórir lögregluþjónar eru látnir og 14 manns særðir eftir sprengjuárás í borginni Diyarbakir í Tyrklandi í dag. Sprengjan var sprengd við strætóskýli í borginni þegar brynvörðum bíl hermanna var ekið fram hjá.

Ekki liggur fyrir hverjir stóðu að baki árásinni, en undanfarið hafa öryggissveitir barist gegn uppreisnarmönnum Kúrda á svæðinu.

Langvarandi vopnahlé á milli Verkamannaflokks Kúrda og yfirvalda í Tyrklandi var rofið í júlí í fyrra og síðan þá hafa mikil átök geisað í austurhluta landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×