Málið hefur vakið mikla athygli Vestanhafs en Brady var gefið að sök að hafa beðið boltastrákana um að dæla lofti úr boltum liðsins fyrir leik gegn Indianapolis Colts í úrslitum Ameríkudeildarinnar í NFL eftir að dómararnir höfðu skoðað boltana.
Patriots unnu öruggan 45-7 sigur á heimavelli og unnu nauman 28-24 sigur á Seattle Seahawks í Ofurskálinni (e. Superbowl) tveimur vikum seinna en Brady var um sumarið dæmdur í fjögurra leikja bann af Roger Goodell, forseta NFL-deildarinnar.
Banninu var aflétt viku áður en tímabilið hófst af dómstólum fyrir ári síðan en Brady átti frábært tímabil og kom liði sínu aftur í úrslit AFC-deildarinnar árinu síðar en þar þurftu Patriots að sætta sig við tap.
Áfrýjunardómstóll úrskurðaði síðan í sumar að NFL hafði rétt fyrir sér með því að dæma leikstjórnanda New England Patriots í bann fyrir þátttöku hans í málinu og sagðist Brady ætla að áfrýja málinu til Hæstaréttar en hann hefur nú ákveðið að taka út sína refsingu.
Það verður því Jimmy Garoppolo sem hefur tímabilið sem leikstjórnandi New England Patriots en hann fær erfiða leiki gegn Arizona Cardinals, Miami Dolphins, Houston Texans og Buffalo Bills í fyrstu leikjum sínum sem byrjunarliðs leikstjórnandi í NFL-deildinni.