Enski boltinn

Liverpool lék eftir leik Manchester United og vann 2-0 sigur á Wigan

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Coutinho í leiknum í dag.
Coutinho í leiknum í dag. Vísir/Getty
Liverpool vann þriðja æfingarleik sumarsins í dag 2-0 þegar lærisveinar Jurgen Klopp mættu Wigan aðeins sólarhring eftir leik Wigan gegn Manchester United.

Klopp tefldi fram sterku liði sem innihélt Philippe Coutinho, Sadio Mane, Roberto Firminho og Dejan Lovren en þeim rauðklæddu tókst ekki að skora í fyrri hálfleik.

Coutinho átti tvær tilraunir sem höfnuðu í markrammanum hjá Wigan en heimamenn í Wigan náðu að halda út þrátt fyrir margar prýðilegar sóknir Liverpool-manna.

Varamennirnir sáu um mörkin í seinni hálfleik en Danny Ings kom Liverpool yfir af stuttu færi eftir sendingu frá Lazar Markovic.

Ungstirnið Benjamin Woodburn bætti við öðru marki Liverpool stuttu síðar en þetta var annar leikurinn í röð sem Woodburn kemst á blað.

Liverpool-menn fengu færi til að bæta við marki eftir það en náðu ekki að nýta sér þau og lauk leiknum með 2-0 sigri Liverpool.

Næsti leikur liðsins er gegn Huddersfield á miðvikudaginn áður en liðið heldur til Bandaríkjanna og tekur þátt í International Champions Cup.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×