Enski boltinn

Þýsku meistararnir með augastað á Koscielny

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Koscielny stöðvar hér Ricardo Quaresma í úrslitaleik EM á dögunum.
Koscielny stöðvar hér Ricardo Quaresma í úrslitaleik EM á dögunum. Vísir/Getty
Þýsku meistararnir í Bayern Munchen eru orðaðir við franska landsliðsmanninn Laurent Koscielny í miðlum erlendis í dag en Koscielny á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum hjá Arsenal.

Koscielny sem verður 31 árs í september hefur verið á mála hjá Arsenal undanfarin sex ár og leikið alls 248 leiki í öllum keppnum fyrir Skytturnar.

Myndi hann keppast við þýsku miðverðina Mats Hummels og Jerome Boateng um stöðurnar í vörn Bæjara en liðið samþykkti að miðvörðurinn Medhi Benatia færi frá liðinu á eins árs lánssamning á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×