Baráttan fyrir lögleiðingu kannabiss endaði með handtöku Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 6. október 2016 07:58 Nielsen er danskur aktívisti sem hefur talað fyrir lögleiðingu kannabiss. Hann og eiginkona hans gætu átt yfir höfði sér 10 ára fangelsi. vísir/getty
Lögreglan í Danmörku hefur handtekið karlmann, Claus Nielsen, fyrir sölu og dreifingu kannabisefna. Nielsen hafði atvinnu af því að selja krabbameinssjúklingum kannabis og gæti átt yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi. Nielsen er aktívisti sem hefur talað mjög fyrir lögleiðingu kannabiss og er þekktur í Danmörku vegna baráttu sinnar. Hann hefur talað opinskátt um kannabissölu sína í fjölmiðlum, þar sem hann segist meðvitaður um möguleikann á ákæru, en segist telja mikilvægt að vekja fólk og stjórnvöld til vitundar um málefnið. Nielsen er þeirrar skoðunar að fagfólk eigi að mega selja kannabis, en undir eftirliti.Í samtali við BT sagðist Nielsen hafa sannfærst um lækningamátt plöntunnar eftir að hafa byrjað að neyta maríjúana vegna slitgigtar sem hann hefur glímt við. Það hafi virkað og því hafi hann viljað aðstoða aðra í svipaðri stöðu. Eiginkona Nielsen hefur einnig verið handtekin vegna málsins, og á jafnframt yfir höfði sér tíu ára fangelsi, fyrir brot á fíkniefnalöggjöfinni. Hún hefur hins vegar neitað öllum ásökunum á meðan Nielsen játar. Lögleiðing kannabisefna hefur verið töluvert í umræðunni í Danmörku að undanförnu. Nýlegar skoðanakannanir benda til þess að yfirgnæfandi meirihluti Dana, eða 88 prósent, er hlynntur lögleiðingu kannabiss. Nokkrir flokkar á þingi hafa lýst yfir stuðningi við lögleiðingu efnanna en þrír stærstu flokkarnir eru andvígir.
Mest lesið Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Netanyahu heitir hefndum Erlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Erlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Kurteisar og fremur óspennandi kappræður Erlent Líkamsárás og eignaspjöll Innlent Fleiri fréttir Kurteisar og fremur óspennandi kappræður Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Sjá meira