Enski boltinn

Ætla að gera Bonucci að dýrasta varnarmanni heims

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bonucci í leik með Juventus.
Bonucci í leik með Juventus. vísir/afp
Antonio Conte, stjóri Chelsea, ætlar að fá sinn gamla lærling, Leonardo Bonucci, til félagsins og honum er alveg sama hvað hann kostar.

Samkvæmt The Telegraph þá ætlar Chelsea að gera Juventus tilboð í Bonucci sem myndi gera leikmanninn að dýrasta varnarmanni allra tíma.

David Luiz, núverandi leikmaður Chelsea, er dýrasti varnarmaður allra tíma en PSG greiddi 50 milljónir punda fyrir hann er Chelsea seldi hann á sínum tíma. Hann kom svo aftur.

Chelsea er sagt vera til í að greiða 60 milljónir punda fyrir Bonucci en það er ekki síst áhugavert í ljósi þess að Bonucci er að verða þrítugur.

Conte er líka að skoða framherja og er sagður hafa augastað á Alvaro Morata og Antoine Griezmann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×