Réðust á herstöð í Túnis Samúel Karl Ólason skrifar 7. mars 2016 10:56 Túniskir hermenn í Ben Gardane. Vísir/AFP
Vígamenn réðust í nótt að herstöð við bæinn Ben Gardane við landamæri Túnis og Líbýu. Minnst þrettán vígamenn féllu í árásinni, hermaður, tveir öryggisverðir og þrír borgarar. Þetta er í annað sinn á innan við viku sem til átaka kemur við landamærin þar sem yfirvöld í Túnis reyna að koma í veg fyrir að óöldin í Líbýu dreifi úr sér. Meðal hinna látnu er tólf ára drengur. Varnarmálaráðuneyti Túnis sagði AFP fréttaveitunni að sex vígamenn væru særðir og þeir yrðu yfirheyrðir. Þá hefur verið kallað eftir ábendingum um grunsamlegar mannaferðir við landamærin. Bandaríkin gerðu loftárásári á þjálfunarbúðir ISIS í Líbýu í síðasta mánuði. Í árásinni féllu tugir vígamanna frá Túnis og hafa eftirlifendur árásarinnar verið að reyna að snúa aftur til Túnis. Stjórnvöld þar í landi hafa reist um 200 kílómetra girðingu við landamærin vegna flutninga fólks yfir landamærin. Sameinuðu þjóðirnar telja að rúmlega fimm þúsund ungir menn frá Túnis hafi gengið til liðs við vígahópa. Vígamenn ISIS gerðu tvær árásir á ferðamenn í Túnis í fyrra, sem hefur farið verulega illa með ferðamannaiðnaðinn í landinu, sem ríkissjóður Túnis treystir verulega á. Talið er að árásirnar hafi verið skipulagðar í Líbýu. 38 ferðamenn féllu í einni árásinni á strandhótel í fyrra. Þar af voru 30 Bretar, en yfirvöld Bretlands ætla að senda tuttugu hermenn til Túnis. Þeir munu þjálfa þarlenda hermenn. Meðal skotmarka í loftárásunum í síðasta mánuði var maður að nafni Noureddine Chouchane, sem talinn er hafa skipulagt árásirnar í fyrra.
Mest lesið Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana Erlent „Kveður nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Innlent Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Innlent „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Innlent Glerbrot í lauginni Innlent „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Erlent Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Erlent Fleiri fréttir Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Sjá meira