Erlent

Rússneskur hermaður féll í Sýrlandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Rússneskir sérsveitarmenn í Sýrlandi.
Rússneskir sérsveitarmenn í Sýrlandi. Vísir/EPA
Rússneskur hermaður lést af sárum sínum í dag eftir að hafa særst alvarlega í stórskotaárás í Sýrlandi. Í tilkynningu frá Varnarmálaráðuneyti Rússlands var árásin gerð þegar hermaðurinn, sem hét Anton Yerygin, var í bílalest í Homs héraði.

Hann var fluttur á sjúkrahús í Khmeimim herstöð Rússa í Sýrlandi, þar sem reynt var að bjarga lífi hans í tvo daga.

Samkvæmt tilkynningunni stendur til að veita Yreygin orðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×