Enski boltinn

Gerrard kveður Los Angeles

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Steven Gerrard í leik með LA Galaxy
Steven Gerrard í leik með LA Galaxy vísir/getty
Steven Gerrard virtist hafa kvatt Los Angeles á Instagram-síðunni sinni í gær en framtíð hans er nú í óvissu eftir að LA Galaxy féll úr leik í úrslitakeppni MLS-deildarinnar vestanhafs.

Gerrard birti mynd af sér með Los Angeles í baksýn og kvaðst munu sakna borgarinnar.

Hann hefur verið í Bandaríkjunum undanfarna átján mánuði eftir að hann yfirgaf Liverpool sem hann hafði þá spilað með allan sinn feril.

Sjá einnig: Ferli Steven Gerrard lauk líklega með tapi í vítaspyrnukeppni

Gerrard hefur reglulega verið orðaður við sitt gamla félag og að hann muni mögulega leggja skóna á hilluna og snúa aftur til Liverpool í nýju hlutverki.

Miðjumaðurinn er samningsbundinn LA Galaxy í eitt ár til viðbótar.

Special place incredible view I will miss you LA #lalaland

A photo posted by Steven Gerrard (@stevengerrard) on


Tengdar fréttir

Gerrard valinn bestur framyfir Giggs og Ronaldo

Steven Gerrard fékk flest atkvæði þegar áhorfendur Sky Sports gátu kosið á milli 50 leikmanna Liverpool og Manchester United um hver væri besti leikmaður liðanna frá upphafi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×