Menning

PORT Verkefnarými opnaði með pompt og prakt - Myndir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Margrét Jochumsdóttir tók meðfylgjandi myndir. Frá vinstri, Árni Már Erlingsson, Skarphéðinn Bergþóruson og Þorvaldur Jónsson sem standa að PORT
Margrét Jochumsdóttir tók meðfylgjandi myndir. Frá vinstri, Árni Már Erlingsson, Skarphéðinn Bergþóruson og Þorvaldur Jónsson sem standa að PORT vísir
PORT gallerí/verkefnarými hefur opnað í portinu á Laugavegi 23b. PORT kemur til með standa fyrir fjölda fjölbreyttra menningarviðburða á næstu mánuðum, fleiri samsýningar ungra íslenskra myndlistarmanna og svaðalegar einkasýningar eru fyrirhugaðar, tónleikahald og hressir gjörningar.

Verkefnarýmið er sýningarrými listamannanna sem standa að PORTI, vina þeirra og vandamanna. Inn af sýningarrýminu hefur Studio Festisvall komið sér fyrir og heldur úti daglegum rekstri verkefnarýmisins.

Fyrsta sýningin, Port #1, var gangsett laugardaginn 26. mars, samsýning 8 ungra íslenskra listamanna, og stendur til 13. apríl.

Listamennirnir eru: Arna Óttarsdóttir Árni Már Erlingsson Dóra Hrund Gísladóttir Guðmundur Thoroddsen Helga Páley Sigurður Atli Sigurðsson, Sindri Leifsson, Þorvaldur Jónsson.

PORT er til húsa í portinu fyrir aftan Macland. Að PORTI standa Árni Már Erlingsson, Þorvaldur Jónsson og Skarphéðinn Bergþóruson. Hér má sjá Facebook-síðu Port.

Með fréttinni má skoða myndir frá opnuninni síðastliðin laugardag þar sem fjölmargir létu sjá sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.