Enski boltinn

Lewandowski: Klopp getur gert Liverpool að meisturum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Robert Lewandowski og Jürgen Klopp.
Robert Lewandowski og Jürgen Klopp. Vísir/Getty
Pólski landsliðsframherjinn Robert Lewandowski þekkir vel til Jürgen Klopp frá tíma þeirra saman hjá Borussia Dortmund og Pólverjinn hefur trú á gamla stjóranum sínum á Anfield.

Liverpool endaði í áttunda sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en er eins og er í fjórða sæti í deildinni eftir sjö umferðir. Liverpool hefur unnið 5 af 7 leikjunum sínum og þar af leiki á móti liðum eins og Arsenal, Chelsea og Englandsmeisturum Leicester City.

Lewandowski spáir því að Liverpool berjist við Manchester City um Englandsmeistaratitilinn.

„Liverpool mun vera í titilbaráttunni í vetur. Pep og Manchester City mun ekki gera þetta auðvelt fyrir önnur félög í deildinni en Liverpool á raunverulega möguleika á því að verða ensku meistari í vetur," sagði Robert Lewandowski við enska miðla.

„Það mun hjálpa Liverpool að vera ekki í Evrópukeppni og þeir ættu að mæta ferskir í leikina. Klopp er kannski alltaf brosandi en hann er nógu miskunnarlaus til að nýta sér það," sagði Lewandowski.

„Ég hef horft á nokkra leiki með Liverpool síðan að Klopp tók við liðinu og það er greinilegt að leikmenn liðsins njóta þess að spila fyrir hann," sagði Lewandowski.

Lewandowski segir að Klopp eigi auðvelt með að fá leikmenn til að treysta sér og sínum leikaðferðum. Það skili sér síðan alltaf inn á vellinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×