Enski boltinn

Pogba er enginn Keane eða Scholes

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Paul Pogba.
Paul Pogba. vísir/getty
Andy Cole, fyrrum framherji Man. Utd, segir að Paul Pogba hafi mikið að sanna hjá félaginu.

Það er þegar mikil pressa á Pogba þar sem hann varð dýrasti leikmaður heims er Man. Utd keypti hann frá Juventus.

„Ég er auðvitað ekki alveg hlutlaus þar sem ég spilaði með bæði Roy og Scholesy. Pogba hefur klárlega gæðin til þess að verða stórkostlegur leikmaður,“ sagði Cole en hann bæði raðaði inn mörkum og rappaði er hann lék með United.

„Mun Pogba verða betri en þeir tveir? Ef hann nær því verður hann heldur betur rosalegur leikmaður. Þeir tveir voru nefnilega algjörlega einstakir. '99-liðið var gott og sérstakt. Við afrekuðum mikið og fólkið elskar þetta lið. Við viljum sjá Man. Utd spila eins og '99-liðið gerði.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×