Enski boltinn

Schmeichel frá í mánuð

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kasper Schmeichel.
Kasper Schmeichel. vísir/getty
Leicester City varð fyrir áfalli í gær er markvörður liðsins, Kasper Schmeichel, meiddist í Meistaradeildarleiknum gegn FCK.

Hann er með brákaða hönd og verður frá í mánuð hið minnsta vegna meiðslanna. Daninn meiddist er hann var að kýla frá marki í leiknum.

Schmeichel hefur verið frábær í Meistaradeildinni með Englandsmeisturunum þar sem hann hefur ekki enn fengið á sig mark.

Ekki liggur enn fyrir hvort hann þurfi að fara í aðgerð vegna meiðslanna en ef svo fer þá verður hann frá í sex vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×