Bíó og sjónvarp

Nemo og Dory snúa aftur: Sjáðu nýjustu stikluna úr Finding Dory

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Nemo og Dory snúa aftur í sumar.
Nemo og Dory snúa aftur í sumar. Mynd/Skjáskot
Það styttist óðum í að framhaldsmynd hinnar geysivinsælu teiknimyndar Finding Nemo, eða Leitin að Nemo, verði frumsýnd næsta sumar og hefur Pixar nú gefið út tilfinningaþrungna stiklu fyrir teiknimyndina.

Í þetta sinn er það gleymni fiskurinn Dory, sem Ellen DeGeneres ljáir rödd sína, sem er í aðalhlutverki en nýja myndin heitir Finding Dory, eða Leitin að Dory.

Ásamt þeim DeGeneres og Albert Brooks, sem talaði fyrir trúðfiskinn Marlin í fyrri myndinni, munu leikarar á borð við Diane Keaton, Idris Elba og Ty Burrell tala fyrir hinar ýmsu sjávarskepnur í myndinni.


Tengdar fréttir

Framhaldsmyndin staðfest

Eftir margra ára vangaveltur hefur Disney-Pixar tilkynnt að framhaldsmynd Finding Nemo, Finding Dory, verði gefin út árið 2015.

Fjölbreyttur ferill Ellen DeGeneres

Spjallþáttastjórnandinn, leikkonan og uppistandarinn Ellen DeGeneres hefur heldur betur komið víða við á ferlinum. Þrettánda sería þáttar hennar er nú í sýningu.

Aðalhetjur Finding Nemo í útrýmingarhættu

Hópur vísindamanna frá Kanada og Bandaríkjunum hefur framkvæmt rannsókn á lífríki kóralrifa. Þeim til hliðsjónar var teiknimyndin vinsæla frá Pixar - Finding Nemo. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að 16% þeirra tegunda sem eru í teiknimyndinni eru nú í bráðri útrýmingarhættu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.