Erlent

Þriggja mánaða aðgerð Europol og Interpol gegn ólöglegum matvælaiðnaði lokið

Birgir Olgeirsson skrifar
Á meðal þess sem var gert upptækt í aðgerðunum.
Á meðal þess sem var gert upptækt í aðgerðunum. Vísir/Europol
Rúmlega tíu þúsund tonn af ólöglegum mat og drykk voru gerð upptæk í einni stærstu aðgerð yfirvalda í þessum flokki á heimsvísu.

Fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC segir frá því að lögreglulið í 57 löndum tóku þátt í aðgerðinni sem stóð yfir í þrjá mánuði, samkvæmt upplýsingum frá Europol.

Á meðal þess sem var gert upptækt var útþynnt áfengi en magnið sem um ræðir var nóg til að fylla 12 þúsund baðkör að sögn BBC, en í Bretlandi var lagt hald á 10 þúsund lítra.

Lögreglan á Ítalíu lagði hald á 85 tonn af ólífum sem búið var að bera á kopar súlfat til að ýkja grænan lit þeirra.

Um var að ræða samstarf evrópulögreglunnar Europol og alþjóðlögreglunnar Interpol sem stóð yfir frá nóvember 2015 til febrúar 2016. 

Europol segir þennan ólöglega iðnað velta milljörðum dollara sem sé kominn til af hækkandi matarverði á heimsvísu. 

Á meðal þess sem var gert upptækt var:

  • Apakjöt í Belgíu
  • Nærri því níu tonn af sykri í Súdan sem hafði verið blandaður saman við áburð. 
  • Lögreglan í Frakkland fargaði 11 kílóum af engisprettum og 20 kílóum af lirfum. 
  • Í Ástralíu voru 450 kíló af hunangi gerð upptæk sem búið var að þynna út. 
  • Lögreglan í Bólivíu fann vöruhús þar sem geymdar voru þúsundir dósir af sardínum og fölsuðum miðum af frægu perúsku vörumerki sem átti að líma á dósirnar. 

    Lögreglan í Ungverjalandi fann rúmlega tvö tonn af andakjöti sem selja átti sem foie gras.
  • Lögreglan í Taílandi gerði upptæk 30 tonn af kjöti sem voru ekki voru talin hæf til manneldis sem selja átti í matvörubúðum. Ásamt því stöðvaði hún glæpahóp sem smyglaði kjöti frá Indlandi til Taílands. 
  • Lögreglan í Suður Kóreu handtók mann sem var grunaður um að smygla fæðubótarefni sem hann seldi sem náttúrulyf en innihélt í raun skaðleg efni. 

    Michael Ellis, sem fer fyrir þessum málaflokki hjá Interpol, sagði þessa starfsemi ógna heilsu fólks sem kaupir mat sem getur reynst hættulegur heilsu þess í góðri trú. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×